Handbolti

Tandri skaut Ystad-menn í kaf í upphafi leiks

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tandri Már Konráðsson var með frábæra skotnýtingu í kvöld.
Tandri Már Konráðsson var með frábæra skotnýtingu í kvöld. Vísir/Daníel
Tandri Már Konráðsson heldur áfram að spila vel með sænska liðinu Ricoh en hann skoraði sjö mörk í 13 marka útisigri á Ystad, 30-17, í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Tandri Már skoraði 7 mörk úr aðeins 9 skotum og var markahæsti maðurinn í sínum liði í þessum leik en flest mörkin hans komu eftir langskot.

Ricoh-liðið var komið með tíu marka forskot í hálfleik, 15-5, en Tandri skoraði fjögur af sex fyrstu mörkum leiksins þegar hans lið komst í 6-0.

Tandri skoraði alls sex af sjö mörkum sínum í fyrri hálfleiknum en þá voru úrslitin í raun ráðin.

Tandri hefur verið að spila mjög vel að undanförnu en liðið hafði aftur á móti gert þrjú jafntefli í röð og ekki unnið síðan 11. september síðastliðinn fyrir leikinn í kvöld. Nú kom hinsvegar sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×