Handbolti

Tandri markahæstur í óvæntum sigri á Guif

Kristján Andrésson hefur ekki verið ánægður með sitt lið í kvöld.
Kristján Andrésson hefur ekki verið ánægður með sitt lið í kvöld.
Tandri Már Konráðsson og félagar í sænska liðinu Ricoh HK gerðu sér lítið fyrir og skelltu liði Kristjáns Andréssonar, Guif, í sænska handboltanum í kvöld.

Leikurinn var æsispennandi og staðan var 11-11 í hálfleik. Tandri og félagar síðan sterkari í síðari hálfleik og tryggðu sér sætan sigur, 26-23.

Tandri Már mjög sterkur í liði Ricoh þar sem hann var markahæstur með fimm mörk. Atli Ævar Ingólfsson skoraði þrjú mörk fyrir Guif þar sem Aron Rafn Eðvarðsson stóð í markinu.

Þetta var leikur í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×