Formúla 1

Talstöðvasamskipti takmörkuð enn frekar

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Toto Wolff og Maurizio Arrivabene liðsstjórar Mercedes og Ferrari ræða málin.
Toto Wolff og Maurizio Arrivabene liðsstjórar Mercedes og Ferrari ræða málin. Vísir/Getty
Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) hefur takmarkað talstöðvasamskipti Formúlu 1 liða við ökumenn enn frekar en þegar hafði verið gert.

Nýja takmörkunin þýðir að ökumenn verða að fara inn á þjónustusvæðið til að fá leiðbeiningar um hvernig þeir geta brugðist við bilunum í bílum sínum.

Breytingin kemur í kjölfar skilaboða sem Mercedes sendi til Nico Rosberg í breska kappakstrinum fyrir tæpum tveimur vikum. Þá var Rosberg ráðlagt að skipta yfir sjöunda gír til að koma í veg fyrir frekari bilun í gírkassa.

Hvað er að breytast?

Skilaboðin má veita um leið og ökumaður kemur inn á þjónustusvæðið. Skilaboðin mega einungis snúa að bilun í bílnum. Skilaboðin mega ekki varða breyttar stillingar sem er ætlað að bæta frammistöðu bílsins.

Skilaboð um bilun verða að innihálda óafturkræfa skipun um að koma inn á þjónustusvæðið til að hætta keppni eða gera við bílinn.

Rosberg hefði þá til að mynda þurft að aka í gegnum þjónustusvæðið og fá skilaboð um hvernig hann ætti að bregðast við á meðan. Hann hefði ekki þurft að stöðva í bílskúrnum.

FIA telur að það að aka í gegnum þjónustusvæðið feli í sér nægjanlega þunga refsingu og að lið muni reyna að forðast þetta úrræði.

Liðin bera svo sönnunarbyrðina fyrir því að þetta hafi verið til að tryggja áframhaldandi möguleika á þátttöku í keppninni en ekki til að auka frammistöðu.

Einu skilaboðin sem senda má út á meðan bíllinn er á brautinni er varða bílinn eru ef yfirbyggingin er að gefa sig eða bila á einhvern hátt.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton vann á heimavelli

Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark á Silerstone brautinni í dag. Nico Rosberg varð annar á Mercedes og Max Verstappen á Red Bull varð þriðji. Rosberg tapaði öðru sætinu til Verstappen. Hann fékk of ítarlegar upplýsingar í talstöðinni.

Red Bull vill vinna meira á árinu

Red Bull liðið í Formúlu 1 vill vinna fleiri keppnir á árinu. Liðsstjóri Red Bull, Christian Horner segir liðið hætt að elta Ferrari. Liðið setji nú markið á Mercedes.

Bílskúrinn: Spennandi síðdegi á Silverstone

Lewis Hamilton á Mercedes minnkaði forskot liðsfélaga síns í heimsmeistarakeppni ökumanna niður í eitt stig með því að vinna á heimavelli sínum, síðustu helgi.

Wolff: Red Bull mikil ógn við Mercedes

Heimsmeistarar bílasmiða í Formúlu 1 halda til Ungverjalands í góðum gír eftir að hafa unnið keppnina á Silverstone brautinni þar síðustu helgi. Ungverski kappaksturinn er þó erfiður liðinu sögulega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×