Lífið

Talsmaður útgerðar sem hálfgildings skotskífa á vegg fréttastofu RÚV

Jakob Bjarnar skrifar
Heiðrún Lind er höfð til skrauts ásamt þeim Sigmundir og Vilhjálmi, sem báðir hafa eldað grátt silfur við Ríkisútvarpið.
Heiðrún Lind er höfð til skrauts ásamt þeim Sigmundir og Vilhjálmi, sem báðir hafa eldað grátt silfur við Ríkisútvarpið.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, talsmaður útgerðarmanna, furðar sig á því að stór mynd af sér sé höfð á vegg fréttastofu RÚV.

Fréttastofan hefur fjallað ítarlega um brottkastsmál í sjávarútvegi og víst er að sambandið milli útgerðarinnar og svo fréttastofunnar er viðkvæmt. Heiðrún Lind birti nú rétt í þessu á Facebookvegg sínum mynd sem hún segir að hafi verið tekin nýlega í húsakynnum fréttastofunnar við Efstaleitið.

„Oftsinnis hefur verið deilt um hlutleysi fréttastofu RÚV. Ég hef svosem enga sérstaka skoðun á því og geng út frá því að fólk vinni almennt af heilindum,“ segir Heiðrún Lind og slær á létta strengi þó henni sé ef til vill ekki hlátur í huga. Hún er þar höfð á vegg með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni Miðflokksins og Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni lögfræðingi, en þessir menn hafa eldað grátt silfur við fréttastofuna með margvíslegum hætti. Heiðrún Lind veltir því fyrir sér hvernig það megi vera að henni sé stillt upp með þessum hætti.

„Þessi ágæta mynd var tekin fyrir einhverjum dögum á umræddri fréttastofu RÚV. Miðað við hana, þá getum við varla deilt um það að fréttamenn RÚV hafa í það minnsta gott skopskyn. Það er fyrir öllu. Helst er ég þó ósátt við að vera sett í þriðja sætið,“ segir Heiðrún Lind en varpar svo fram því sem hún telur kjarna málsins: „Síðan er náttúrulega spurningin stóra þessi; af hverju verðskulda ég að fá hengda upp mynd af mér í höfuðstöðvum Ríkisútvarpsins?“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×