FÖSTUDAGUR 24. MAÍ NÝJAST 08:45

Fimm titlar á fimm árum

SPORT

Talsmaður Nubo: Ekkert breyst hér á landi

Vísir Viðskipti innlent 05. apríl 2012 16:16
Halldór Jóhannsson, talsmaður Huang Nubo hér á landi.
Halldór Jóhannsson, talsmaður Huang Nubo hér á landi.
„Við höfum ekki upplýsingar um að eitthvað hafi breyst," segir Halldór Jónsson, landslagsarkitekt og talsmaður kínverska fjárfestarins Huang Nubo hér á landi.

Kínverska ríkisútvarpið greindi frá því í dag að Nubo hefði náð samkomulagi um risafjárfestingu í suðvesturhluta Kína þar sem stendur til að reisa heilsuþorp líkt því og Nubo vildi reisa á Grímsstöðum á Fjöllum. Um er að ræða risafjárfestingu samkvæmt heimasíðunni, því þar er sagt að Nubo ætli að fjárfesta fyrir 8 milljarða dollara í þorpinu Pu´er í Yunni héraði í Kína. Hann leitar einnig fleiri fjárfesta til þess að koma að verkefninu.

Í byrjun febrúar var greint frá því á fréttastofu Stöðvar 2 að Sveitarfélagið Norðurþing íhugaði að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan.

Aðspurður segir Halldór þessa umræddu fjárfestingu ekki hafa áhrif á þær áætlanir eftir því sem hann best viti. Eins og fram hefur komið liggur fyrir umsókn um fjárfestingasamning frá sveitarfélaginu inni á borði iðnaðarráðuneytis. Umsókn Huang Nubo er dagsett 18. janúar og er um langtímaleigu á hluta Grímsstaða og að íslenskt fyrirtæki í hans eigu fái að reisa og reka þar 100 herbergja lúxushótel. Ennfremur að fá á Reykjavíkursvæði að reisa og reka 300 herbergja 5 stjörnu hótel.

„Það er nokkuð ljóst að fyrirtækið hans hefur fengið gríðarlega góða kynningu hér og landi auk þess sem það er öflugt og gott. Svo er þessi markaður á mikilli siglingu," segir Halldór vongóður um að Nubo fái að fjárfesta hér á landi.

Og þó Ögmundur Jónasson hafi ekki leyft Nubo að fjárfesta á Grímsstöðum á Fjöllum þá er ljóst að aðrir eru afar jákvæðir í garð Kínverjans. Þannig var honum boðið til Danmörku að skoða fjárfestingatækifæri. Þegar Halldór er spurður hvernig sú ferð hafi farið svarar hann því til að Nubo vilji fyrst fá svör um fjárfestingar hér á landi. Halldór segist ekki vita hvenær von sé á svari, en vonast til þess að það komi á næstu vikum.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Viðskipti innlent 24. maí 2013 07:26

Hagnaður Landsbankans 8 milljarðar á fyrsta ársfjórðungi

Rekstrarhagnaður Landsbankans nam 8,0 milljörðum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins 2013, samanborið við 7,7 milljarða króna á sama tímabili í fyrra. Meira
Viðskipti innlent 24. maí 2013 07:19

Afkoma Eimskips batnar milli ára

Hagnaður Eimskips eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins nam rétt tæpum 400 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þetta er mun betri afkoma en á sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn nam ... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 21:45

Fyrrverandi forstjóri Baugs sleppur með skrekkinn - þarf aðeins að greiða 170 milljónir

Hæstiréttur Íslands lækkaði í dag verulega skuld sem Gunnars Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Baugs, var dæmdur til þess að greiða þrotabúi BGE eignarhaldsfélagsins, en hann var í nóvember á síðast... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 12:57

Ísland hundraðasta vindorkuþjóðin

Alþjóðlega vindorkustofnunin kynnti í ársskýrslu sinni að Ísland hefði á árinu 2012 bæst í hóp þjóða sem nýtir vindorku til almennrar raforkuframleiðslu. Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 12:48

Síldarvinnslan tók á móti tæplega 36.000 tonnum af kolmunna

Kolmunnavertíðinni er lokið hjá Síldarvinnslunni. Alls tók Síldarvinnslan á móti tæplega 36 þúsund tonnum af kolmunna á vertíðinni ef með eru talin 4.034 tonn af sjófrystum kolmunna sem landað var í f... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 12:38

FME var óheimilt að krefja fjármálafyrirtæki um greiðslur

Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að Fjármálaeftirlitinu (FME) hafi verið óheimilt að krefja tiltekin fjármálafyrirtæki um greiðslu kostnaðar vegna athugana stofnunarinnar á lánas... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 12:17

Hagnaður Arion banka þrefalt minni en í fyrra

Hagnaður Arion banka á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 1,4 milljarði króna eftir skatta samanborið við 4,5 milljarða króna á sama tímabili í fyrra. Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 11:48

Vestmannaeyingar saka Magnús Kristinsson um laumuspil

Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar segir að það komi á óvart hversu einbeittir kaupandi og seljandi fyrirtækisins Berg-Huginn hafi verið í því að koma í veg fyrir að forkaupsréttur Vestmannaeyjabæjar á fyrir... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 11:38

Alvogen eykur umsvif sín á Íslandi

Alþjóðlega lyfjafyrirtækið Alvogen heldur áfram að byggja upp starfsemi sína á Íslandi. 30 starfsmenn hafa verið ráðnir á íslensku skrifstofu félagsins frá því starfsemi þess hófst hér á landi árið 20... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 11:07

Niðursveiflan á mörkuðum nær einnig til Íslands

Sú mikla niðursveifla sem var á mörkuðum í Asíu í nótt og í Evrópu í morgun hefur smitast yfir í íslensku Kauphöllina. Íslenska úrvalsvísitalan hefur lækkað um tæplega 1,4% það sem af er degi. Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 10:56

Sala skuldabréfa í útboðum í apríl sú mesta undanfarið ár

Heildarsala skuldabréfa í verðbréfaútboðum í apríl s.l. nam 34,4 milljörðum kr. á söluverði samanborið við 10 milljarða kr. mánuðinn á undan. Salan er sú mesta undanfarið tæpt ár eða síðan í júní í fy... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 10:38

Spá óbreyttri verðbólgu í maí

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs lækki um 0,1% milli mánaða. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan vera óbreytt í 3,3% í maí. Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 10:17

Viðskipti með atvinnuhúsnæði 11 milljarðar í apríl

Í apríl s.l. var 55 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 38 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var rétt rúmlega 11 milljarðar króna... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 09:10

Nóbelsverðlaunahafi segir það rétt að gera hlé á ESB viðræðum

Edmund Phelps Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði segir að það sé rétt ákvörðun hjá Íslendingum að gera hlé á aðildarviðræðunum að Evrópusambandinu. Phelps segir að sú ákvörðun muni verja Ísland gegn mörgu... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 08:17

Stofna félag um byggingu hafnar á Dysnesi

Félagið Dysnes Þróunarfélag ehf. verður stofnað í dag til uppbyggingar, markaðsstarfs og kynningar á Dysnesi við Eyjafjörð sem framtíðar hafnarsvæði vegna þjónustu við námu og olíuvinnslu fyrir nor... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 06:00

Telja fyrirheit stjórnarsáttmálans um samráð lofa góðu

Aðilar vinnumarkaðarins segja fyrirheit stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um aukið samráð lofa góðu fyrir komandi kjaraviðræður. Helst séu það fyrirheit um aukið samráð varðandi h... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 06:00

Stefndi kannast ekkert við þennan Gunnar

Sigurjón Þ. Árnason fullyrðir að stefna slitastjórnar Landsbankans hafi verið birt óviðkomandi manni. Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 06:00

Svartsýnir á brátt afnám hafta

Forsvarsmenn stærstu lífeyrissjóða landsins eru svartsýnir á að það takist að afnema gjaldeyrishöftin á næstu árum. Einungis um tólf prósent forsvarsmanna lífeyrissjóða telja að þeir fái á ný heimild ... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 15:10

Niðurstaða ESA um gengislánin kemur ekki á óvart

Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja segir að rökstutt álit ESA (Eftirlitsstofnunnar EFTA) um gengislán komi ekki á óvart. Það hafi verið viðbúið að slíkt álit kæmi fram í ljós... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 14:27

Capacent fær vottun hjá IBM

Bandaríska fyrirtækið IBM, sem er leiðandi á sviði viðskiptahugbúnaðar, hefur gefið Capacent vottun sem IBM Premium Business Partner, en það er æðsta vottun sem samstarfsaðilar IBM geta hlotið. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 14:22

Engar líkur á heimild til erlendra fjárfestinga næstu 5 árin

Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna meta nær engar líkur á því að þeim verði veitt heimild til erlendra nýfjárfestinga á næstu fimm árum. Þeir eru aðeins bjartsýnni á að heimildin verði veitt á næstu tíu ár... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 13:37

ESA: Algert bann við gengislánum er brot á EES samningum

Ísland hefur gerst brotlegt við EES samninginn með því að leggja algert bann við veitingu gengistryggðra lána í íslenskum krónum. Þetta er niðurstaða rökstudds álits Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá ... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 13:26

Erlendir ferðamenn sækja í íslensk sumarhús

Mikil aukning hefur orðið á bókunum sumarhúsa hjá erlendum ferðamönnum. 60% viðskiptavina sprotafyrirtækisins Búngaló, sem aðstoðar íslenskar fjölskyldur við að leigja út sumarhús sín, eru erlendir. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 13:04

Erla ráðin sem viðskiptastjóri hjá Brandenburg

Erla Tryggvadóttir hefur verið ráðin í starf viðskiptastjóra hjá auglýsingastofunni Brandenburg. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 12:45

Ekki orð um Íbúðalánasjóð

Ekki er minnst einu orði á Íbúðalánasjóð í stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem kynntur var fyrir hádegi. Í ritinu fjármálastöðugleiki, sem Seðlabankinn gefur út tvisvar á ... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Viðskipti / Viðskipti innlent / Talsmaður Nubo: Ekkert breyst hér á landi
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000