Erlent

Tals­maður hústöku­mannanna féll í skot­bar­daga

Samúel Karl Ólason skrifar
Robert "LaVoy“ Finicum, talsmaður hópsins er sagður hafa látið lífið í átökum við lögreglu.
Robert "LaVoy“ Finicum, talsmaður hópsins er sagður hafa látið lífið í átökum við lögreglu. Vísir/Getty
Lögregluþjónar handtóku í nótt sjö leiðtoga hústökumannanna í Oregon. Búgarðseigandinn Robert Finicum féll þegar til skotbardaga kom á milli mannanna og lögreglu, en hann var talsmaður hópsins sem lagði undir sig opinbert húsnæði friðlands fyrir tæpum mánuði. Lögreglan stöðvaði mennina þegar þeir voru á leið á íbúafund í bænum John Day þar sem þeir ætluðu að ræða við íbúa um stór landsvæði sem ríkið á á svæðinu.

Dóttir Finicum staðfesti að hann hefði látið lífið í samtali við Oregonian. „Hann myndi aldrei vilja meiða neinn, en hann trúði á það að vernda frelsi og vissi hvaða áhættu það fæli í sér,“ sagði Arianna Finicum Brown. Leitogi hópsins, Ammon Bundy, er meðal þeirra sjö sem voru handteknir og bróðir hans Ryan særðist í átökum við lögreglu.

Degi áður en Robert Finicum féll ræddi hann við blaðamenn Oregonian um aukna spennu á milli lögreglumanna og hústökumannanna.

Myndbandið má sjá hér.

Enn eru vopnaðir menn í skrifstofuhúsnæði friðlandsins og segjast þeir tilbúnir til að verja sig. Ekki liggur þó fyrir hve margir eru þar og er ljóst að einhverjir hafi yfirgefið svæðið.

Lögreglan hefur sett upp vegatálma og umkringt skrifstofurnar.

Lögreglan hafði í ekki gripið til aðgerða gegn hópnum i 25 daga en þrýstingur hafði aukist undanfarna daga á að lögreglan myndi láta til skara skríða. Meðlimir hópsins eru að mestu aðkomumenn og hafa íbúar nærliggjandi bæja gert ljóst að þeir styddu ekki hópinn.

Ammon Bundy hafði sagt að markmið hópsins væru í raun tvö. Annað væri að ríkisstjórn Bandaríkjanna léti af stjórn sinni á friðlandinu og landið yrði gefið til heimamanna. Þeir gætu nýtt það til timburframleiðslu, sem beitiland eða grafið eftir málmum.

Meðlimir hústökuhópsins voru vel vopnaðir.Vísir/Getty
Hitt væri að fangelsisdómar yfir feðgunum Dwight og Steven Hammond verði mildaðir. Þeir voru nýverið dæmdir í fimm ára fangelsi fyrir að kveikja í landi ríkisins í Oregon. Það gerðist árið 2001.

Feðgarnir héldu því fram að þeir hefðu kveikt elda á sínu landi meðal annars til að sporna gegn ágengum plöntum. Saksóknarar sögðu hins vegar að eldarnir hefðu verið kveiktir til þess að fela vegsummerki um veiðiþjófnað þeirra.

Þeir hafa gefið út að þeir styðji ekki aðgerðir hópsins í Oregon.

Um 300 manns mótmæltu handtöku feðganna í bænum Burns á nýársdag. Hluti þessa hóps sleit sig þó frá mótmælunum og keyrðu að friðlandinu. Starfsmönnum þess hafði verið skipað að halda sig heima þann dag, þar sem grunur lék á að eitthvað álíka gæti gerst.

Ammon Bundy hefur sagt að yfirtakan hafi verið skipulögð um langt tímabil.

Ammon Bundy var helsti leiðtogi mannanna í Oregon.Vísir/Getty
Bundy bræðurnir eru frá Nevada, þar sem fjölskylda þeirra hefur áður deilt við lögreglu og sett út á meðferð hins opinbera á landi í vesturhluta Bandaríkjanna. Þá ætluðu yfirvöld að leggja hald á búfénað Cliven Bundy, föður Ammon og Ryan, þar sem hann skuldaði rúmlega milljón dala vegna gjalda og sekta fyrir að hafa beitt fénu á landi ríkisins í rúm 20 ár.

Cliven neitaði
 að viðurkenna að ríkið eigi landið, sem var friðarland fyrir eyðimerkurskjaldböku sem er í útrýmingarhættu. Meðlimir vopnaðra hópa, e. militias, gengu til liðs við fjölskylduna og kom til spennuþrungins umsáturs nærri landareign Bundy fjölskyldunnar.

Bundy fjölskyldan fékk stuðning víða að sem fór þó um þúfur skömmu eftir að umsátrinu lauk. Cliven hélt þá ræðu fyrir stuðningsmenn sína þar sem hann kvartaði meðal annars yfir yfirgangi stjórnvalda og fóstureyðingum og velti því fyrir sér hvort að þeldökkir íbúar Bandaríkjanna væru ef til vill betur komnir í dag ef þrælahald hefði aldrei verið afnumið.

Ræðu Bundy má sjá hér að neðan.

Vopnaðir hópar, e. militias, hafa veitt hústökumönnunum stuðning pg sent þeim byrgðir. Eftir að handtökurnar fór fram hefur verið kallað eftir því að þeir hópist til Oregon og komi þeim til hjálpar.

Lögreglan hefur tilkynnt þeim sem enn halda til í friðlandinu að þeim sé frjálst að fara. Einhverjir hafa tekið boðinu en þeir eru fáir. Einn þeirra sem fóru sagði að þeir sem eftir væru hafi ákveðið að halda kyrru fyrir.

Því er ljóst að umsátrið heldur áfram um tíma nema lögreglan ráðist til atlögu.


Tengdar fréttir

Ammon Bundy og félagar handteknir í Oregon

Til skotbardaga kom í nótt þegar Alríkislögreglan bandaríska réðst til atlögu gegn vopnuðum hópi manna sem hafa haft skrifstofur náttúruverndarstofnunar í Oregon á sínu valdi um nokkurra vikna skeið. Einn mannanna féll í átökunum og annar særðist en leiðtogi þeirra, Ammon Bundy, er nú í haldi lögreglu ásamt sex öðrum félögum sínum.

Senda út neyðarkall eftir vistum

Svo virðist vera sem vopnuðu mennirnir í Oregon, sem tóku skrifstofur dýraathvarfs á sitt vald, hafi ekki skipulagt valdarán sitt nógu vel.

Vopnaðir menn ögra alríkisstjórninni

Hópur vopnaðra manna hefur náð á sitt vald skrifstofum dýraathvarfs í Oregon. Mennirnir segja markmið sitt vera að berjast gegn harðstjórn og hvetja föðurlandsvini til að ganga til liðs við sig.

FBI tekur málin í sínar hendur í Oregon

Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, stýrir nú lögregluaðgerðum í Oregon-ríki þar sem hópur vopnaðra manna hefur náð skrifstofum dýraathvarfs á sitt vald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×