Innlent

Talning úr atkvæðagreiðslu hafin

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Talning úr atkvæðagreiðslu um kjarasamning sjómanna er hafin í húsakynnum ríkissáttasemjara. Gert er ráð fyrir að talningu ljúki á níunda tímanum í kvöld en þá ræðst það hvort verkfalli sjómanna verði afstýrt og þeir haldi út á miðin í kvöld, eða hvort verkfallinu verði framhaldið.

Tvísýnt þykir hvort samningarnir verði samþykktir, en Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir þetta góða samninga. Þeir voru kynntir félagsmönnum í gær og stóðu einhver félög fyrir kynningu í dag. Góð þáttaka hefur verið víðast hvar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×