Skoðun

Talandi um Brúnegg

Guðmundur Edgarsson skrifar

Eftirlit og vottun hvers konar hafa verið áberandi í umræðunni að undanförnu vegna villandi merkinga á vörum Brúneggja sem Kastljós gerði lýðum ljóst um daginn. Ekki skal hér lagður dómur á frammistöðu opinberra eftirlitsstofnana á borð við MAST í því máli heldur því velt upp hvort eftirlit og vottun þurfi endilega að vera á vegum ríkisins. Viðbrögð mín við þeim vangaveltum eru einföld: Markaðurinn á að sinna slíku, ekki hið opinbera.



Dæmi um einkarekin vottunarfyrirtæki

Staðreyndin er sú að fjölmörg eftirlits- og vottunarfyrirtæki eru nú þegar starfandi á frjálsum markaði hér á landi sem annars staðar. Nefna má frjáls félagasamtök á borð við Neytendasamtökin á Íslandi og hina alþjóðlegu gæðavottunarstofnun, ISO. Þá er starfandi aragrúi af sjálfstæðum matsfyrirtækjum í samkeppnisrekstri eins og Tékkland og Aðalskoðun á sviði bifreiðaskoðunar hér heima og breska úttektarfyrirtækið BSI, sem m.a. vottar gæði og öryggi á lækningatækjum, lyftubúnaði og leikvöllum á alþjóðavísu. Að auki hefur netið séð til þess að neytendur eru sjálfir beinir aðilar að úttektum og gæðamati. Nefna má TripAdvisor og eBay í því samhengi. Það er því liðin tíð að leita þurfi á náðir ríkisins til að sinna eftirliti með öryggi og gæðum vöru eða þjónustu.



Gott að hafa samkeppni

Fyrirtæki í matvælaframleiðslu eða öðrum rekstri hafa beinan hag af því að framleiðsla þeirra sé vottuð af viðurkenndum aðilum. Þannig skapa þau traust og auka viðskipti sín. Þau myndu því glöð greiða beint fyrir slíkar úttektir. Væru öll mats- og eftirlitsfyrirtæki á markaði myndu þau keppa á grundvelli verðs og þjónustu. Þeim fyrirtækjum sem ekki stæðu sig yrði rutt úr vegi og ný tækju við eða þau sem fyrir væru efldust. Slík hreinsun á sér trauðla stað ef ríkið situr eitt að starfseminni. Þvert á móti. Fjárframlög eru aukin og rekstur viðkomandi stofnunar tryggður enn frekar. Fyrirtæki og neytendur fá ekkert val, borga bara reikninginn í formi hærri skatta. Ekki gott.

 



Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×