Lífið

Talaði af sér á rauða dreglinum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hayden Panettiere.
Hayden Panettiere.
Leikkonan Hayden Panettiere geislaði á rauða dreglinum á Emmy-verðlaunahátíðinni í Nokia Theater í Los Angeles í gærkvöldi.

Hayden á von á sínu fyrsta barni með úkraínska boxaranum Wladimir Klitschko og talaði af sér í viðtali við sjónvarpskonuna Giuliana Rancic á E!.

"Ég get ekki beðið eftir henni," sagði Hayden. Giuliana greip það á lofti og bað leikkonuna um að staðfesta að hún og Wladimir ættu von á stúlku.

"Já, þetta er lítil stúlka."

Varðandi nöfn sagði Hayden að þau skötuhjúin væru enn að velta þeim fyrir sér.

"Við þurfum að tryggja að nafnið sé bandarískt og úkraínskt. Við erum enn að vinna í þessu en við erum með nokkrar hugmyndir."

Aðspurð um hvort hún þrái einhvern sérstakan mat á meðgöngunni stóð ekki á svörunum.

"Meðgangan ýkti aðeins löngun mína í kjúklinganúðlusúpu."


Tengdar fréttir

Stórleikarar grínast fyrir Emmy-hátíðina

Leikkonan Julia Louis-Dreyfus slær heldur betur í gegn í nýjasta myndskeiði sem birt er til þess að vekja athygli á Emmy-hátíðinni sem styttist óðum í.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×