Erlent

Tala látinna komin í 30 í sjúkrahúsinu í Kabul

Samúel Karl Ólason skrifar
Vitni segja vígamennina hafa skotið á alla sem urðu á vegi þeirra.
Vitni segja vígamennina hafa skotið á alla sem urðu á vegi þeirra. Vísir/AFP
Minnst 30 eru látnir og 50 særðir eftir árás vígamanna Íslamska ríkisins á stærsta hersjúkrahúsið í Kabul í Afganistan í morgun. Vígamennirnir, sem voru klæddir eins og starfsmenn sjúkrahússins, brutu sér leið inn í sjúkrahúsið eftir að einn þeirra sprengdi sprengjubelti sitt við inngang þess.

Vitni segja vígamennina hafa skotið á alla sem urðu á vegi þeirra.

Þeir héldu sjúkrahúsinu í um sex klukkustundir, en hópur sérsveitarmanna var fluttur með þyrlu á þak þess og felldu þeir árásarmennina fjóra. Þá höfðu miklir bardagar staðið yfir í og við sjúkrahúsið.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af sérsveitarmönnunum lenda á þakinu. Þar má einnig sjá hvernig fólk falldi sig á syllum fyrir utan glugga á sjúkrahúsinu.

Ashraf Ghani, forseti Afganistan, hefur fordæmt árásina og segir hana brjóta gegn mannlegum gildum.

„Í öllum trúarbrögðum eru sjúkrahús talin vera griðarstaðir og að ráðast á slíkt er að ráðast á allt Afganistan.“

Fréttaveita ISIS hefur birt myndir og myndskeið sem vígamennirnir tóku inn í sjúkrahúsinu og þar fyrir utan. Talibanar í Afganistan segjast ekki hafa komið að árásinni á nokkurn hátt.

Una Sighvatsdóttir, fréttakona Stöðvar 2, er í Kabul á vegum Atlantshafsbandalagsins. Hún hafði nýverið heimsótt sjúkrahúsið og rætt við unga kvenlækna sem vinna þar. Hún segist ekkert vita enn um afdrif læknanna sem hún ræddi við.

Una Sighvatsdóttir.Vísir
Í færslu á Facebook segir Una viðtal við dr. Sonia Baha hafi birst í dag í tilefni Alþjóðlegs baráttudags kvenna.

„Í dag var gerð árás á hersjúkrahúsið í Kabúl, sem ég heimsótti í síðustu viku til að hitta unga kvenlækna. Viðtalið mitt við dr. Sonia Baha birtist í morgun í tilefni Alþjóðlegs baráttudags kvenna og má sjá hér að neðan. Stuttu síðar réðst hópur manna með alvæpni og sprengjuvesti inn á sjúkrahúsið, klæddir í læknasloppa. ISIS lýsir yfir ábyrgð. Nýjustu fregnir herma að 30 séu látnir og 50 særðir.

Ég veit ekki ennþá um afdrif Soniu eða hinna læknanna sem ég hitti. Vona það besta á meðan fregnir skýrast og hvet ykkur til að horfa á viðtalið við þessa hugrökku ungu konu,“ segir Una.

Með færslunni birti hún viðtalið við dr. Sonia Baha sem sjá má hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×