Skoðun

Taktu þér pláss!

Brynhildur S. Björnsdóttir skrifar
Þrátt fyrir mikla hvatningu og stuðning í uppvexti mínum fékk ég ósjaldan þau skilaboð frá mínu nærumhverfi að hafa aldrei hátt um eigið ágæti og að hógværð væri mesta dyggðin. Þegar ég asnaðist til að taka að mér leiðtogahlutverk í leik eða námi fékk ég yfirleitt þau skilaboð frá umhverfinu að ég væri frek.

Ég lagði mig fram í skólanum en lærði fljótt að hafa aldrei hátt um það þegar vel gekk og passaði að bæla niður „frekjuna“ í mér. Ég vann samviskusamlega þau störf sem mér buðust en fékk hjartsláttartruflanir þegar kom að launaviðtölum. Ég hélt að framkvæmdastjórar og þingmenn hlytu að vera geimvísindamenn. Ég forðaðist áhættu og sá fyrir mér að starfa alltaf í öruggu starfi og fannst því fráleitt að taka áhættu með eigin rekstri. Hvernig gæti ég svo sem haft eitthvað til málanna að leggja sem einhverjir aðrir væru ekki nú þegar búnir að leggja til? Hvort sem það voru þjóðfélagsmál eða viðskiptahugmyndir.

Þangað til allt breyttist. Mitt „a-ha“ móment var árið 2008 þegar ég hlustaði fyrir tilviljun á viðtal við konu sem hafði yfirstigið allar þær hindranir sem ég hafði sett sjálfri mér og hafði þetta að segja við kynsystur sínar: Taktu þér pláss! Enginn annar en þú getur gefið þér þetta pláss. Taktu það bara!

Korteri seinna hrundi Ísland og ég hafði engu að tapa. Stofnaði fyrirtæki og byggði það upp næstu árin. Smám saman hætti ég að fá hjartsláttartruflanir við að verðleggja þjónustu mína og í dag get ég meira að segja talað um peninga – án þess að falla í yfirlið. Ég á þá nefnilega skilið fyrir mitt vinnuframlag.

Fljótlega tók ég mér pláss í þjóðfélagsumræðunni með því að gefa kost á mér til alþingiskosninga 2013. Og það var ekki auðvelt. Ég þurfti að slökkva á öllum innri röddum um að vera ekki að trana sér fram og þykjast vita eitthvað. Undirskriftasöfnun í Mjóddinni var ágætis rassskelling fyrir hógværðina (með tilheyrandi kjánahrolli) sem náði svo ákveðnum hæðum í útvarpsviðtali á Útvarpi Sögu.

Skilaboðin eru þessi: Kona…taktu þér pláss! Vertu dætrum þínum góð fyrirmynd. Sættu þig aldrei við aftasta sætið eða að leiðtogahæfni þín flokkist undir frekju. Samfélagið og atvinnulífið þarf á þinni rödd að halda. Stjórnir fyrirtækja þurfa á þinni visku og reynslu að halda. Stjórnmálin þurfa á þér að halda. Þú hefur engu að tapa – nema hógværðinni.

Og hógværðin er svo last decade!




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×