Lífið samstarf

Taktu þátt: iStore og Lífið gefa splunkunýjan iPhone 6s

Stefán Árni Pálsson
Verður þú heppinn? Nýjasta flaggskip Apple er í boði fyrir þann lesanda Lífsins sem dreginn verður úr pottinum.
Verður þú heppinn? Nýjasta flaggskip Apple er í boði fyrir þann lesanda Lífsins sem dreginn verður úr pottinum. vísir
iStore í Kringlunni og Lífið á Vísi ætla að gefa splunkunýjan iPhone 6s.

Þessi nýjasti iPhone er með talsvert miklar nýjungar. Síminn er með þrívíddasnertiskjár sem skynjar ekki lengur bara snertingu heldur líka hvers konar snertingu.

Skjárinn er búinn nýjum þrýstinema sem skynjar af hve miklu afli skjárinn er snertur. Með því að ýta þéttar á skjáinn er ítarlegri virkni virkjuð með ýmsum hætti, til dæmis hægt að skoða skilaboð með því að halda þrýstingnum á skjánum en áður þurfti nokkra smelli til að opna og loka skilaboðum.

Síminn lærir líka að þekkja snertingar eiganda síns og leggur á minnið reglubundnar hreyfingar. Þá er myndavél nýja símans 12 megapixla en var áður 8 megapixlar í forveranum iPhone 6. Sjá nánar um símann hér.

Þá er komið að því mikilvægasta, sem er hvernig vinnur þú símann? Gefðu Facebook-síðu Lífsins „like“ og skráðu þig síðan í gestabók iStore hér að neðan.

Þá fara þátttakendur í pott sem dregið verður úr þann 15. október. Í boði verður rósrauður 64GB iPhone 6s.


Tengdar fréttir

iPhone 6S kominn í verslanir

Í Ástralíu sendi einn viðskiptavinur vélmenni til að bíða í alla nótt í röð eftir iPhone 6S.

Töfrandi óvissuferð Apple

Enn á ný hefur Apple kynnt vörur til leiks sem eru í senn heillandi og kunnuglegar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×