Menning

Taka þátt í Carnegie Art Award

Hanna Ólafsdóttir skrifar
Einar Garibaldi
Einar Garibaldi
Myndlistamennirnir Davíð Örn Halldórsson og Einar Garibaldi Eiríksson hafa verið valdir af dómnefnd til að taka þátt í hinum virtu myndlistarverðlaunum Carnegie Art Award. Þeir eru tveir af sautján norrænum listamönnum sem eiga möguleika á að hljóta ein af stærstu listaverðlaunum heims.

Davíð örn segir mikinn heiður að hafa verið valinn og að þáttakan opni fyrir ýmis tækifæri þar sem verkin verði sýnd í mörgum af virtustu listasöfnum Norðurlanda og víðar sem og að vegleg bók er gefin út með öllum verkunu. „Svo eru verðlaunin fyrir fyrsta sætið ekki af verri endanum, 1000 krónur sænskar eða um 20 milljónir íslenskra króna.“

Hann segir umsóknarferlið hafa verið langt og strangt en sýningin mun hefjast í Stokkhólmi í Nóvember og flakkar á milli listasafna í um tvö ár. „Ég var bara að frétta þetta á fimmtudag og er ennþá bara í skýjunum. Þetta er mjög spennandi tækifæri.“

- hó






Fleiri fréttir

Sjá meira


×