Innlent

Taka þarf á málefnum útlendinga af festu

Hjörtur Hjartarson skrifar
Hannes Hólmsteinn Gissurason segir að sú þróun sem á sér stað í stjórnmálunum á Norðurlöndum hljóti að vera íslenskum hægri mönnum umhugsunarefni. Löndin hafi tekið of mikinn þátt í hinni evrópsku samrunaþróun sem aftur hefur leitt af sér gremju og útlendingahatur.

Um 800 þúsund Svíar greiddu Svíþjóðardemókrötum atkvæði sitt í kosningunum um helgina. Flokkurinn hefur lengi verið sakaður um rasisma og að ala á andúð á útlendingum, en eitt helsta baráttumál flokksins er að draga úr flæði innflytjenda til Svíþjóðar.

Hannes Hólmsteinn Gissurason, prófessor við Háskóla Íslands skrifar um kosningarnar í Svíþjóð á bloggsvæði sínu á Pressunni. Þar segir hann að efnahagsstefna hægriflokkanna hafi ekki beðið ósigur heldur hafi málstaður Svíþjóðardemókrata borið sigur úr býtum rétt eins og á fleiri stöðum í Evrópu. Þá segir Hannes:

„Þessi þróun hýtur að vera íslenskum hægri mönnum umhugsunarefni. Skilaboðin eru skýr.“

En hvað á Hannes við með þessum orðum?

„Hægri flokkar, borgarlegir flokkar á Norðurlöndunum og í Bretlandi þurfa að hugsa sinn gang. Þeir hafa tekið mikinn þátt í þessari evrópsku samrunaþróun og þeir hafa opnað þessi lönd upp á gátt fyrir útlendingum og það hefur valdið gremju og sú gremja hefur farið í rangan farveg,“ segir Hannes Hólmsteinn.

Nánar tiltekið í farveg útlendingahaturs og ofstækis og það sé vandamál sem verði að taka á.

„Ég held að þeir geti gert það með því að hægja á þessari samrunaþróun í Evrópusambandinu og með því að hleypa þeim útlendingum inni í þessi lönd sem eiga erindi til okkar því vissulega eigum við að bjóða duglegt og hæfileikaríkt fólk frá útlöndum velkomið. En misyndismenn og fólk sem vill aðeins lifa á öðrum og fólk sem vill troða sínum ófrjálslyndu sjónarmiðum upp á okkur, það á ekki að vera velkomið í þessum löndum og það á að taka miklu strangar á þeim málum en gert hefur verið fram að þessu.“

Hannes segir að fólk sem sé sama sinnis og hann, vera hrætt við að opinbera áðurnefnd sjónarmið.

„Það dynur á þeim alls konar skammaryrði en við leysum úr þessum erfiðu málum með skömmum heldur með rökum og með því að taka á þeim með festu og með því að verja það frelsi sem við höfum áunnið okkur á vesturlöndum með mikilli baráttu í þúsund ár,“ segir Hannes Hólmsteinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×