Tónlist

Taka synina með í tónleikaferðalagið

Heiða Eiríks og Berglind Ágústsdóttir með sonum sínum.
Heiða Eiríks og Berglind Ágústsdóttir með sonum sínum.

„Vinir okkar á höfuðborgarsvæðinu eru alveg brjálaðir út í okkur og vilja ólmir að við sjóðum saman í tónleika í bænum,“ segir Ragnheiður Eiríksdóttir, eða Heiða, sem lögð er af stað í tónleikaferð út á land með vinkonu sinni, Berglindi Ágústsdóttur.

Þær tóku syni sína með í ferðina en þeir eru 11 og 13 ára og fá það verkefni að taka myndir af mæðrum sínum á meðan á tónleikunum stendur.

„Við erum á leiðinni á Snæfellsnesið núna og fáum að gista þar eina nótt. Svo liggur leiðin á Hótel Djúpavík á Ströndum, þaðan inn á Akureyri og á Seyðisfjörð og við endum tónleikaferðina í Blúskjallaranum á Neskaupstað á sunnudaginn,“ segir Heiða. Kraumur styrkti þær til ferðarinnar.

Heiða er oft kennd við hljómsveitina Unun og því enginn nýgræðingur í tónlistinni en Berglind var að ljúka við sinn þriðja geisladisk sem ber heitir „I am your girl“.

„Við erum báðar búnar að vera í þessu síðan níutíu og eitthvað svo við erum svona „næntís“ píur,“ segir Heiða, sem notast við kassagítar og söng á meðan Berglind leikur eins konar tilraunaraftónlist með tölvu og hljóðnema. „Við höfum aldrei náð að gera neitt saman áður þar sem Berglind hefur lengi verið búsett í Berlín. En svo vildi það bara svo vel til að við vorum í fríi á sama tíma og því ákváðum við bara að slá til og taka strákana með,“ segir Heiða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×