Viðskipti innlent

Tæplega 34 milljarða velta með bréf í Kaupþingi eftir Al-Thani viðskiptin

ingvar haraldsson skrifar
Þóra Hallgrímsdóttir, sérfræðingur í skaðbótarétti segir að grundvöllur geti verið til skaðabótamáls á hendur sakborningunum.
Þóra Hallgrímsdóttir, sérfræðingur í skaðbótarétti segir að grundvöllur geti verið til skaðabótamáls á hendur sakborningunum. vísir/vilhelm
Tæplega 34 milljarða velta varð með hlutabréf í Kaupþingi eftir að tilkynnt var um kaup Al-Thani á 5,01% hlut í Kaupþingi þann 22. september og fram til 8. október 2008 þegar viðskiptum með bréf í bankann var hætt. Alls urðu ríflega 2700 viðskipti með bréf í Kaupþingi eftir Al-Thani viðskiptin samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll Íslands.



Allir sakborningarnir í Al-Thani málinu voru dæmdir fyrir markaðsmisnotkun í Hæstarétti Íslands í síðustu viku.
Í kjölfar dóms Hæstaréttar  vakna spurningar um hvort þeir sem keyptu hlutabréf í bankanum geti höfðað skaðabótamál á hendur sakborningunum. Þóra Hallgrímsdóttir, lögfræðingur og sérfræðingur í skaðabótarétti við Háskólann í Reykjavík, útilokar ekki að grundvöllur sé fyrir skaðabótamáli. „Það er alveg ljóst að það er skaðabótaskyld háttsemi þarna fyrir hendi því þeir voru sakfelldir í refsimáli,“ segir Þóra.



Sjá einnig: 
Al-Thani málið: Þungir fangelsisdómar yfir Kaupþingsmönnum

Hún segir hinsvegar að sönnunarfærsla vegna ætlaðs tjóns geti verið afar erfið því dómur Hæstaréttar dugi ekki einn og sér til greiðsluskyldu í skaðabótamáli. „Vandamál þeirra sem mögulega kunna að eiga slíkan rétt er að sanna fyrir hvaða tjóni þeir urðu og tengja það markaðsmisnotkunarmálinu. Sanna þarf að þú að þú hefðir ekki tapað því sem nemur verðmæti hlutafjárins hefðu viðskiptin ekki farið fram. Þú þarft að sýna fram á hvert verðmæti hlutabréfanna var og hvort það hafi verið þetta eina atvik leiddi til þess að þú varðst fyrir þessu tjóni, “ segir Þóra.



Kaup vegna Al-Thani viðskiptanna duga ekki til

Þóra segir kaup á hlutabréfum í bankanum vegna eða í kjölfar Al-Thani viðskiptanna ekki duga til þess að eiga skaðabótakröfu. „Ekki eitt og sér. Það dugar ekki að sýna fram á að þú hefðir haft væntingar um að verðmæti hlutabréfanna ykist eða héldi sér. Hlutabréfaviðskipti eru yfir höfuð áhættusöm. Þú þarft að sannreyna að atburðarásin hefði verið með þeim hætti að þú hefðir ekki tapað peningum,“ segir Þóra.

Sjá einnig:  „Íslenskt réttarkerfi hefur dæmt saklausa menn seka“



Sakborningarnir fjórir í Al-Thani málinu voru allir dæmdir fyrir markaðsmisnotkun.vísir/daníel
Hún segir hinsvegar að dómurinn geti orðið sterkt vopn í höndum þeirra sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni. Ummæli í dómnum staðfesti að markaðsmisnotkun sé til þess fallin að geta valdið tjóni. Þó sé ekki tekin afstaða til þess hvert slíkt tjón sé, segir Þóra. Þá segir Þóra að brotin séu hugsanlega fyrnd enda sex og hálft ár síðan viðskiptin áttu sér stað. Hinsvegar geti fyrningafresturinn mögulega miðast við þann tíma sem dómurinn fellur því þá hafi hin saknæma háttsemi verið staðfest.


Tengdar fréttir

Skyldi maðurinn vera drukkinn?

Facebookþjóðin komst í mikið tilfinningalegt uppnám eftir að Bogi Ágústsson ræddi við Sigurð Einarsson Kaupþingsmann í sjónvarpsfréttum gærkvöldsins.

„Ég var ekki drukkinn“

Það hvarflaði ekki annað að Sigurði Einarssyni en að hann yrði sýknaður í Al Thani-málinu en hann hlaut fjögurra ára fangelsisdóm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×