Tækifæri fyrir Íslendinga í jarðhitageira Bandaríkjanna 28. október 2010 12:01
Árni Magnússon, forstöðumaður Orkuteymis Íslandsbanka, segir tækifæri fyrir íslensk ráðgjafar- og verkfræðifyrirtæki í jarðhitageiranum á Bandaríkjamarkaði. Það sé vöxtur framundan í greininni vestanhafs og mikilvægt að íslenskir aðilar nýti sér það og flytji út sérfræðiþekkingu sína og ráðgjöf. Hann segir ennfremur mikilvægt að hlúa að geiranum hér á landi svo að Ísland missi ekki forystustöðu sína í greininni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka en bankinn hefur gefið út fjórðu skýrsluna um jarðhitamarkaðinn í Bandaríkjunum. Í henni er einnig fjallað um jarðhitamarkaðinn í Kanada. Í skýrslunni er fjallað um áframhaldandi vöxt jarðhitamarkaðarins í Bandaríkjunum og þær áskoranir sem framundan eru á þeim markaði. Alexander Richter, sérfræðingur í Orkuteymi Íslandsbanka, hélt fyrirlestur í vikunni fyrir hönd bankans við opnun jarðhitasýningarinnar Geothermal Energy Expo og ársfundi GRC í Sacramento í Bandaríkjunum og kynnti þar jarðhitaskýrsluna fyrir gesti sýningarinnar. Alexander, sem leiðir greiningarvinnu Orkuteymis Íslandsbanka, lagði áherslu í fyrirlestrinum á að þeir sem starfa innan jarðhitamarkaðarins ættu að undirbúa sig fyrir vöxt geirans á næstu misserum. Í helstu niðurstöðum skýrslunnar er dregin fram sá aukni fjöldi verkefna sem er í geiranum, en í dag eru 152 jarðhitaverkefni í gangi í Bandaríkjunum, sem gefa möguleika á allt að 7.050 MW raforkuframleiðslu. Dregin er fram í skýrslunni sú aukna eftirspurn sem er fyrir borunum og fjármögnun þeirra. Fjármögnunarþörf í Bandaríkjunum einum er um 13 milljarðar dollara fyrir borun á næstu fjórum árum. Þessi mikla fjármögnunarþörf skapar miklar áskoranir fyrir geirann til að laða að nægjanlegt fjármagn, auk þess sem ljóst er að mikil þörf verður hæft starfsfólk og tækniþróun. Einnig er í skýrslunni fjallað um löggjöf í Bandaríkjunum fyrir jarðvarmaiðnaðinn sem hefur hjálpað mikið við að auka áhuga á geiranum. Skattaívilnanir og styrkir fyrir jarðhitaverkefni auk lánstrygginga og rannsóknar og þróunarverkefna hafa haft jákvæð áhrif á iðnaðinn, en á móti er ástæða til að hafa áhyggjur af mögulegum breytingum í þeim efnum vegna nýrrar löggjafar.
Mest lesið Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Sjá meira