Lífið

Systurnar leggja Twitter undir sig... aftur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Malín Brand og Hlín Einarsdóttir eiga fjölmiðlaumfjöllunina annan daginn í röð.
Malín Brand og Hlín Einarsdóttir eiga fjölmiðlaumfjöllunina annan daginn í röð. vísir
Þær Hlín Einarsdóttir og Malín Brand hafa annan daginn í röð sett Twitter á hliðina hér á landi.  

Í gær kom fram að systurnar hafi gert tilraun til að kúga fé út úr Sigmundur Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra.

Í dag er annað fjárkúgunarmál komið upp, en maður sem lagði fram kæru á hendur Hlín og Malín í dag vegna fjárkúgunar greiddi 700 þúsund krónur gegn því að vera ekki sakaður um að hafa nauðgað Hlín.

Sjá einnig: Sökuðu manninn um að hafa nauðgað Hlín

Maðurinn og Hlín eiga að hafa sofið saman á laugardagskvöldi í apríl. Á mánudeginum hafði Malín samband við manninn og sakaði um nauðgun. 

Fólk keppist um að koma með fyndnustu punktana varðandi þetta mál.
Sagðist hún hafa gögn sem sönnuðu mál hennar. Þetta hefur Vísir samkvæmt heimildum.

Sjá einnig: Systurnar Malín og Hlín handteknar vegna tilraunar til fjárkúgunar á hendur forsætisráðherra

Lögreglan handtók þær í Hafnarfirði um hádegisbil á föstudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni segir að þær hafi játað að hafa sent Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra bréf þar sem þær reyndu að kúga fé út úr honum.

Sjá einnig: Reyndu að kúga fé út úr Sigmundi Davíð

Íslendingar hafa greinilega skoðun á málinu og hafa kassamerkin #fjárkúgun, #mahlin og #lekasystur verið gríðarlega fyrirferðamikil á Twitter, annan daginn í röð. Hér að neðan má fylgjast með umræðunni á Twitter. 


Tengdar fréttir

Sökuðu manninn um að hafa nauðgað Hlín

Maðurinn sem lagði fram kæru á hendur systrunum Hlín Einarsdóttur og Malín Brand í dag vegna fjárkúgunar greiddi 700 þúsund krónur gegn því að vera ekki sakaður um að hafa nauðgað Hlín.

Sérsveitin kölluð til þótt öryggi Sigmundar væri ekki ógnað

Sú staðreynd að fjárkúgunarkröfu var beint gegn forsætisráðherra og fjölskyldu hans hafði ekki áhrif á umfang aðgerðar lögreglu. "Þetta var tilraun til fjárkúgunar og viðbrögð í samræmi við það,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson.

Annað fjárkúgunarmál

Kæra var í dag lögð fram hjá lögreglunni á hendur systrunum Hlín Einarsdóttur og Malínar Brand vegna fjárkúgunar.

Malín Brand kveðst hafa dregist inn í fjárkúgunina

Malín Brand og Hlín Einarsdóttir voru handteknar á föstudag fyrir að reyna að kúga fé af forsætisráðherra. Húsleit var gerð á heimili þeirra beggja en Malín segist hafa dregist inn í atburðarás sem Hlín systir hennar hafi hrundið af stað.

Systurnar setja Twitter á hliðina

Twitter er sprunginn hér á landi og kemst fátt annað að en tilraun Malín Brand og Hlín Einarsdóttur til að kúga fé út úr Sigmundur Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×