Golf

Systkinin jöfnuðu bæði vallarmet á sama deginum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Signý Arnórsdóttir og Rúnar Arnórsson.
Signý Arnórsdóttir og Rúnar Arnórsson. Vísir/Stefán
Systkinin Signý Arnórsdóttir og Rúnar Arnórsson áttu bæði mjög flottan dag á Íslandsmótinu í golfi en þá fór fram annar dagur mótsins af fjórum en spilað er á Jaðarsvelli á Akureyri í ár.

Signý Arnórsdóttir og Rúnar Arnórsson náðu bæði að jafna vallarmetið á Jaðarsvellinum í dag.

Signý og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir jöfnuðu báðar metið hjá konunum en Rúnar var einn af fimm kylfingum sem jöfnuðu sólarhringsgamalt met Arons Snæs Júlíussonar frá því í gær. Auk Rúnars jöfnuðu þeir Axel Bóasson, Gísli Sveinbergsson, Arnór Ingi Finnbjörnsson og Andri Már Óskarsson einnig vallarmetið.

Signý Arnórsdóttir lék holurnar átján á 68 höggum eða þremur höggum undir pari. Hún þurfti níu færri högg í dag en á fyrsta hringnum í gær. Signý var með fjóra fugla og einn skolla á hringnum. Hún lék fyrri níu holurnar á -1 og þær níu seinni á -2.

Rúnar Arnórsson lék holurnar átján á 67 höggum eða fjórum höggum undir pari. Hann þurfti fimm færri högg í dag en á fyrsta hringnum í gær. Rúnar var með fjóra fugla, einn örn og tvo skolla á hringnum. Hann lék fyrri níu holurnar á -1 og þær níu seinni á -3.  

Signý Arnórsdóttir er í 4. sæti hjá konunum þegar keppni er hálfnuð en hún er sjö höggum á eftir Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur sem er efst alveg eins og eftir fyrsta daginn.

Rúnar Arnórsson er einn af þremur kylfingum í öðru sæti hjá körlunum en hann er aðeins einu höggi á eftir Keilismanninum Axel Bóassyni sem er í efsta sæti eftir 36 holur.


Tengdar fréttir

Ólafía Þórunn: Ég er alltaf að læra betur á völlinn

Það stefnir í æsispennandi keppni í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem hófst í dag á Jaðarsvelli á Akureyri en það munar aðeins tveimur höggum á efstu þremur konunum eftir fyrstu átján holurnar.

Aron Snær: Þessi hringur kemur mér ekkert á óvart

Aron Snær Júlíusson úr GKG er með tveggja högga forskot að loknum fyrsta keppnisdeginum á Íslandsmótinu í golfi á Eimskipsmótaröðinni en hann setti nýtt glæsilegt vallarmet í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×