Innlent

Systkini Júlíusar Vífils gruna hann um græsku

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Týndir sjóðir Ingvars Helgasonar verða til umfjöllunar í Kastljóssþætti kvöldsins.
Týndir sjóðir Ingvars Helgasonar verða til umfjöllunar í Kastljóssþætti kvöldsins. Vísir/Vilhelm
Erfingjar hjónanna Ingvars Helgasonar og Sigríðar Guðmundsdóttur ætla að fela erlendu rannsóknarfyrirtæki að leita að týndum sjóðum foreldra sinna sem þau telja að finna erlendis.  Upp rann fyrir þeim ljós þegar þau áttuðu sig á því að borgarfulltrúinn Júlíus Vífill Ingvarsson, bróðir þeirra sem um tíma gegndi framkvæmdastjórastöðu hjá Ingvari Helgasyni hf., hefði stofnað aflandsfélag í Panama árið 2014. Málið verður til umfjöllunar í Kastljósþætti kvöldsins.

„Svo þegar þetta kemur í Kastljósinu með Júlíus Vífil að hann hefði átt peninga þarna úti þá vissi maður hvað þetta var. Þetta voru þá lífeyrissjóðir foreldra okkar sem þau voru að díla við,“ segir Guðrún Ingvarsdóttir, dóttir Ingvars og Sigríðar og systir Júlíusar Vífils, í samtali við Kastljós.

Ingvar Helgason byggði upp eitt stærsta fyrirtæki landsins á starfsævi sinni og hafði fjölmargar bílategundir til sölu í sínu umboði. Var hann talinn einn auðugasti maður landsins á sínum tíma. Fyrirtækinu fór hins vegar að ganga illa um aldamótin, sameinaðist svo B&L og var síðar selt árið 2011.

Upphæðir upp á hundruð milljóna króna

Lögmaður Ingvars Ingvarssonar, annars systkinis, segir erfingjana gera ráð fyrir því að upphæðirnar hafi á sínum tíma numið hundruð milljóna króna sem væru yfir milljarður króna í dag. Ingvar féll frá árið 1999 en Sigríður í fyrra. Þá hafði hún setið í óskiptu búi.

Erfingjarnir deila og leita þeirra fjármuna sem Ingvar heitinn á að hafa safnað erlendis. Um sé að ræða umboðslaun sem hann fékk greidd erlendum framleiðendum sem hann átti í viðskiptum við. Reikninga sem Sigríður heitin reyndi að finna, án árangurs.

Skömmu eftir að í ljós kom að Júlíus Vífill ætti lífeyrissjóð á Panama sagði hann af sér sem borgarfulltrúi á borgarstjórnarfundi í Ráðhúsi Reykjavíkur Hann sagði mikilvægt að farið væri yfir hagsmunaskráningu borgarstjórnar en að ekki hefði verið getið þess að skrá ætti lífeyris- og séreignasjóði. Því hefði hann ekki gert það. 

Fréttastofa náði ekki tali af Júlíusi Vífli vegna málsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×