Erlent

Systir Mariuh Carey handtekin fyrir vændi

Samúel Karl Ólason skrifar
Mariah Carey mun ekki hafa rætt við eldri systur sína um árabil.
Mariah Carey mun ekki hafa rætt við eldri systur sína um árabil. Vísir/Getty
Eldri systir söngkonunnar Mariah Carey var handtekin fyrir vændi á föstudaginn. Lögreglan í Saugerties í New York ríki lagði gildru fyrir hana eftir að hún auglýsti vændi á netinu.

Alison A. Carey var handtekin á hóteli í bænum, en hún hafði stundað vændi á hótelinu í um viku. Lögreglan hefur sagt að þeir sem hafi haft mök við hana, ættu að fara til læknis.

Héraðsmiðillinn Daily Freeman segir frá því að lögregluþjónar hafi séð auglýsingu Carey á netinu og einn þeirra hafi verið sendur til að leggja hana í gildru.

Í auglýsingunni vitnaði Carey í frægt lag systur sinnar frá árinu 1995 sem heitir Fantasy.

Samkvæmt heimildum People hefur Mariah Carey ekki rætt við systur sína um árabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×