Erlent

Sýrlenska vopnahléið í uppnámi

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Hjálpargögn liggja eins og hráviði í bænum Orum al-Kubra, skammt frá Aleppo, þar sem loftárás á bílalest kostaði um 20 manns lífið.
Hjálpargögn liggja eins og hráviði í bænum Orum al-Kubra, skammt frá Aleppo, þar sem loftárás á bílalest kostaði um 20 manns lífið. Nordicphotos/AFP
Loftárás á bílalest með hjálpargögn á mánudag varð til þess að Sameinuðu þjóðirnar hafa tímabundið hætt að senda hjálpargögn með þessum hætti til íbúa á svæði, sem uppreisnarmenn í Sýrlandi hafa á sínu valdi skammt vestan við borgina Aleppo.

Árásin kostaði um tuttugu manns lífið, allt almenna borgara. Auk þess eyðilögðust átján flutningabifreiðar frá sýrlenska Rauða hálfmánanum. Í bílunum voru matvæli ætluð íbúum svæðisins, en þar búa tugir þúsunda manna.

Meðal hinna látnu var Omar Barakat, yfirmaður sýrlenska Rauða hálfmánans í Aleppo.

Bæði sýrlensk og rússnesk stjórnvöld neita að þeirra herlið hafi gert þessa loftárás, en sýrlensku mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights sögðu flest benda til þess að annaðhvort sýrlensk eða rússnesk flugvél hefði gert árásina.

Bandarísk stjórnvöld hafa sakað Rússa um að bera endanlega ábyrgð á henni, jafnvel þótt í ljós komi að það hafi verið sýrlenski herinn sem sé hinn seki. Enda hafi Rússar, samkvæmt vopnahléssamkomulaginu sem gert var í byrjun mánaðarins, tekið að sér að hafa hemil á sýrlenska stjórnarhernum meðan vopnahlé stæði yfir.

Óljóst er hvort framhald verður á vopnahléinu, sem hófst mánudaginn 12. september og átti að standa í viku hið minnsta. Að lokinni þeirri viku ætluðu Bandaríkjamenn og Rússar að hefja samstarf um árásir á Íslamska ríkið svonefnda, eða Daish-samtökin, og aðra öfgahópa samkvæmt ákvæðum samkomulagsins.

Sýrlenski stjórnarherinn hóf loftárásir á uppreisnarmenn að nýju á sunnudaginn, þegar ekki var liðin vika frá því vopnahléið hófst. Daginn áður var gerð loftárás á sýrlenska hermenn. Ljóst þykir að alþjóðaherlið undir forystu Bandaríkjanna hafi gert þá árás, en Bandaríkjaher segist vera að kanna hvað fór úrskeiðis. Meira en sextíu sýrlenskir hermenn létu lífið í þessari árás.

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði vopnahléið engu að síður enn í fullu gildi þegar hann í gær hitti Sergei Lavrov, hinn rússneska starfsbróður sinn, á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem þá var að hefjast í New York.

Fréttin birtist í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×