Skoðun

Sýrland

Bergur Ebbi Benediktsson skrifar
Mörgum sinnum á ári dúkkar upp málefni sem yfirgnæfir alla umræðu á Íslandi. Það getur verið umræða um kaup á nýrnatæki eða hneykslunaralda vegna þess að einhver leggur ítrekað í tvö bílastæði.

Þetta er ekkert séríslenskt. Svona er þetta alls staðar í heiminum hvort sem staðir eru litlir eða stórir, ríkir eða fátækir. Það er enginn eðlismunur á því hvernig umræðuefni rísa og hníga í heilu landi eða í litlu kaffisamsæti.

Við erum orðin vön þessu. Það er beinlínis spilað inn á þetta. Góðum málefnum er sinnt með árveknisátökum. Það eru blásnir upp hoppukastalar eða hlaupin maraþon til að beina athyglinni í stutta stund að góðu málefni. Markmiðið er „að vekja fólk til umhugsunar“ og svo þegar það er búið þurfa hin góðu málefni að fara aftast í röðina og bíða þolinmóð eftir plássi í næstu umferð í umræðuefnahringekjunni.

Ég hugleiði þetta vegna þess sem hefur verið mest í umræðunni undanfarna viku. Flóttamannaneyðin. Frá Sýrlandi streyma allir sem hafa til þess einhver ráð. Sýrland er eins og Bosnía 1993. Þar hafa hlið vítis opnast. Landið er klofið og þrír ofbeldisfullir hópar berast á banaspjótum og beita ógeðslegum aðferðum eins og efnavopnum og nauðgunum.

Straumur flóttamanna mun aðeins aukast. Sumir munu deyja á landamærunum, sumir í vöruflutningalestum eða sökkvandi skipum en ekkert mun stöðva strauminn. Þetta er hið viðvarandi ástand og á sama tíma og land eins og Kanada, sem hefur langa sögu af stuðningi við flóttamenn, stígur á bremsurnar þá er sjálfssprottið íslenskt átak að vekja heimsathygli.

Það eina sem ég vildi sagt hafa er að ég styð þetta átak af svo miklum móð að ég óska þess að það geri meira en að vekja fólk til umhugsunar. Ég óska þess að það öðlist meira en 15 mínútur árveknisfrægðar áður en fólk fer að hugsa um næsta mál. Höldum því á dagskrá, höldum áfram að þrýsta á stjórnvöld og bjóða fram aðstoð og hættum ekki fyrr en samþykkt hefur verið að taka á móti margfalt fleiri flóttamönnum en upphaflega var ráðgert.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×