Synirnir eru bestu vinir mínir

Fréttablađiđ Tíska og hönnun 18. febrúar 2012 14:30
Mamma Angóla Ana Maria hefur gengist undir tvćr nýrnaígrćđslur og hafa veikindin hamlađ henni á ýmsan hátt, til dćmis í vinnu. Hún reynir ađ halda sér í formi međ göngutúrum, leikfimi og dansi. „Dansinn er besta ćfingin og mannskepnan ţarf á dansi ađ halda,“ segir hún.
Mamma Angóla Ana Maria hefur gengist undir tvćr nýrnaígrćđslur og hafa veikindin hamlađ henni á ýmsan hátt, til dćmis í vinnu. Hún reynir ađ halda sér í formi međ göngutúrum, leikfimi og dansi. „Dansinn er besta ćfingin og mannskepnan ţarf á dansi ađ halda,“ segir hún. fréttablađiđ/anton
Umfjöllunarefni vinsælasta lags sumarsins 2010, Mama Angola, er Ana Maria Unnsteinsson, móðir Unnsteins og Loga í hljómsveitinni Retro Stefson. Hún sagði Kjartani Guðmundssyni frá borgarastyrjöldinni í heimalandinu og árunum sautján á Íslandi.

Mér líður mjög vel hérna. Íbúðin er rúmgóð og frábært að geta farið út í garð og út á pallinn á sumrin. Ég er frá Afríku og ég þarf mitt pláss!“ segir Ana Maria Unnsteinsson þegar blaðamaður kemur í heimsókn á notalegt heimili hennar í Laugardalnum. Líklega hafa flestir heyrt Önu Mariu getið sem Mömmu Angóla, en hún er umfjöllunarefni samnefnds poppsmells hljómsveitarinnar Retro Stefson sem var eitt hið vinsælasta sinnar tegundar hér á landi sumarið 2010.

Synir Önu Mariu, Unnsteinn Manuel og Logi Pedro, eru meðlimir sveitarinnar sem hefur gert góða hluti á undanförnum árum, sent frá sér tvær breiðskífur sem báðar nutu hylli og vinnur nú hörðum höndum að þeirri þriðju. Þá hefur Retro Stefson tryggt sér útgáfusamning við stórfyrirtækið Universal og leikið á fjölda hljómleika víða um heim.

Sjálf hefur Ana Maria búið á Íslandi í sautján ár og unnið hin margvíslegustu störf, en einnig glímt við nýrnaveiki sem tvisvar hefur ógnað lífi hennar.

„Mér finnst mjög gaman að labba um Laugardalinn og sérstaklega að líta við í Húsdýragarðinum við og við. Það eina sem mér þykir leiðinlegt er hversu þrengt er að svínunum og lömbunum í garðinum. Þau geta varla hreyft sig í þessu litla plássi. Mega þessi dýr ekki frekar vera í garðinum hjá mér? Þar er miklu meira pláss,“ bætir hún við og skellir upp úr. „Við bjuggum lengi í Þingholtunum og strákunum mínum finnst Laugardalurinn nánast vera uppi í sveit. En ég er ánægð.“


Hélt ađ allir vćru látnir
Ana Maria fæddist í Angóla í Afríku, eins og titill téðs dægurlags Retro Stefson bendir til, og er ein átta systkina. Faðir hennar lést þegar Ana Maria var einungis sex ára gömul og til að létta undir með móður hennar var hún tekin í fóstur af portúgölskum hjónum sem störfuðu í Angóla, en landið var þá portúgölsk nýlenda.
Ellefu ára, árið 1971, fluttist Ana Maria svo með fósturforeldrum sínum til Portúgal en fjórum árum síðar hlaut Angóla sjálfstæði og hófst þá fyrir alvöru blóðug borgarastyrjöld í landinu sem stóð yfir með hléum í 27 ár. Ástandið í heimalandinu gerði það að verkum að Ana Maria hefur ekki heimsótt það á ný, en segist dreyma um að komast þangað einhvern daginn og helst með syni sína meðferðis.
„Ég myndi ekki vilja flytja til Angóla til að búa þar, því ég vil bara vera á Íslandi. En mig langar til að kanna innviði landsins, ekki borgirnar heldur upplifa frumskóginn og kynna Unnstein og Loga fyrir fjölskyldunni okkar, sem er af Kimbundu-ættflokknum og risastór. Ein af systrum mínum á tíu syni!“ segir hún og bætir við að hún hafi verið svo heppin að enginn af nánustu ættingjum hennar lést í hinni langvinnu borgarastyrjöld í landinu.
„Á fimm ára tímabili missti ég allt samband við fólkið mitt, því ástandið var þannig að ekkert virkaði, hvorki póstþjónusta, símasamband né annað. Í mörg ár sendi ég mömmu minni peninga til Angóla frá Portúgal, en var á endanum ráðlagt að hætta því þar sem vitað var að bréfin myndu aldrei ná á áfangastað. Ég vissi því ekki hvernig ættingjum mínum leið og óttaðist að þeir væru allir látnir, hélt að ég væri ein í heiminum, þar til að einn góðan veðurdag fékk ég bréf frá bróður mínum sem sagði mér að allir væru lifandi. Þetta var risastórt bréf og ég grét af gleði,“ rifjar Ana Maria upp. „Nú horfir allt til betri vegar og ég er viss um að innan tíu ára verður Angóla komið fremst í röð Afríkulanda.“


Tvisvar lífshćttulega veik
Að lokinni hefðbundinni skólagöngu í Portúgal starfaði Ana Maria meðal annars á prjónastofum, sem sölukona, hárgreiðslukona og húshjálp, þar sem hún öðlaðist mikla reynslu í matreiðslu sem nýttist henni síðar á lífsleiðinni. Tilvonandi eiginmanni sínum og barnsföður, Stefáni Unnsteinssyni, kynntist hún í strætóskýli nærri höfuðborginni Lissabon en hann vann þá að saltfisksútflutningi til landsins.
Unnsteinn Manuel og Logi Pedro fæddust með tveggja ára millibili í upphafi tíunda áratugarins og árið 1995 fluttu þau til Íslands. Þá var Ana Maria þegar farin að finna fyrir nýrnasjúkdómi sem hefur haft mikil áhrif á líf hennar æ síðan.
„Ég var stöðugt með mikinn hita og leið illa, en læknarnir í Portúgal fundu ekkert að mér nema óvenju háan blóðþrýsting. Ég var því sett á lyf sem unnu á blóðþrýstingnum en höfðu slæm áhrif á nýrun,“ segir Ana Maria. „Í upphafi ætluðum við einungis að dvelja á Íslandi í nokkra mánuði, en læknarnir hér voru fljótir að greina mig nýrnaveika og settu mig í viðeigandi meðferð. Hefði ég ekki komið til Íslands væri ég ekki til frásagnar í dag, því ég var orðin mjög veik. En hérna höfum við búið síðan.“
Tvær nýrnaígræðslur fylgdu í kjölfarið, árin 1997 og 2003. Sú fyrri heppnaðist ekki nægilega vel þar sem nýrað virkaði ekki og þufti því að fjarlægja það á ný með tilheyrandi vanheilsu. „Eftir þá aðgerð var ég hrikalega veik, í raun nærri því að deyja, og hugsaði með mér að ég vildi aldrei fara í nýrnaígræðslu aftur. En síðari aðgerðin gekk betur. Þó hef ég verið fremur heilsutæp síðan, verð til að mynda auðveldlega þreytt, og það hefur hamlað mér frá því að vinna fulla vinnu. Ég reyni þó að halda mér í góðu formi með göngutúrum, leikfimi og dansi. Dansinn er besta æfingin og mannskepnan þarf á dansi að halda,“ segir Ana Maria.
Hún segir syni sína tvo hafa hjálpað sér mikið í veikindunum og viðurkennir að án þeirra hefði hún átt mun erfiðara með að harka af sér í gegnum þá reynslu. „Ég gleymi því til dæmis aldrei þegar fyrri nýrnaígræðslan var gerð á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn. Logi var bara fimm ára og dálítið hræddur við lyftuna á spítalanum, en einn daginn kom hann aleinn upp til mín með lyftunni og sagði: „Mamma, aldrei gefast upp.“ Þetta augnablik hugsa ég alltaf um þegar eitthvað bjátar á. Svo bætti Logi við: „Ég er strax byrjaður að tala dönsku!“. Ég bað hann um að leyfa mér að heyra dönskuna og þá stóð ekki á svarinu: „Jeg snakker ikke dansk!“,“ segir Ana Maria og hlær.


Reyni ađ mćta á alla tónleika
Á Íslandi hefur Ana Maria meðal annars starfað á frístundaheimili og sem matreiðslukona í leikskóla, auk þess sem hún hefur lagt veisluþjónustum lið og prjónað og lappað upp á hina ýmsu skrautmuni, sem hún kaupir og selur svo aftur á mörkuðum víðsvegar um borgina.
Í tvö ár nam hún við matreiðslubraut Menntaskólans í Kópavogi og nú um stundir leggur hún stund á nám við sjúkraliðabraut Fjölbrautaskólans við Ármúla, en hún og Stefán skildu fyrir átta árum. Í frístundum hefur hún einna mesta ánægju af að syngja í kórum, en hún var lengi í kór Háteigskirkju og syngur nú með kór Landakotskirkju.
Unnsteinn Manuel og Logi Pedro sýndu einnig snemma mikinn áhuga á tónlistariðkun og segir Ana Maria syni sína hafa fengið gott uppeldi fyrir framtíðarstarfið í Austurbæjarskóla og Tónmenntaskóla Reykjavíkur við Lindargötu.
„Þegar þeir fóru ungir í heimsóknir til Portúgal voru þeir stundum spurðir hvort þeir kysu frekar að búa í Portúgal eða á Íslandi. Þá sögðust þeir gjarnan vilja búa í Portúgal, en bara ef þeir fengju að taka skólann sinn með sér,“ segir Ana Maria. „Þeir hefðu ekki getað fengið betri skóla en Austurbæjarskóla, þar sem mörg börn eru af erlendum uppruna og tónlistarkennslan fyrsta flokks undir stjórn tónmenntakennarans Péturs Hafþórs Jónssonar. Þeim leið svo vel í skólanum. Ég þurfti aldrei að draga þá fram úr rúminu til að fara í skólann því þeir voru svo spenntir að mæta snemma til að geta spilað á hljóðfæri í smá stund áður en kennslustundirnar hófust. Sumarkaupinu sínu eyddu þeir öllu, hverri einustu krónu, í hljóðfæri,“ segir hún og ekki leynir sér að hún er stolt af sonum sínum.
„Við erum bestu vinir og okkur líður mjög vel saman. Þeir taka tónlistina mjög alvarlega og ég er mjög ánægð með það hvernig þeir haga sínu lífi. Ég reyni að mæta á hverja einustu tónleika sem Retro Stefson heldur og stundum kynna þeir mig fyrir áhorfendum sem mömmu sína, drottninguna frá Afríku. Ég stend samt aldrei upp. Ég er allt of feimin til þess,“ segir Ana Maria.

Fleiri fréttir - Tíska og hönnun

Tíska og hönnun 24. maí. 2012 09:30

Bláa Lóniđ bakhjarl Hönnunarmiđstöđvar Íslands

Bláa Lóniđ og Hönnunarmiđstöđ Íslands hafa gert međ sér samstarfssamning og er Bláa Lóniđ ...  

Meira
Tíska og hönnun 24. maí. 2012 10:30

Ljótufatakeppni á Billboard

Billboard verđlaunahátíđin fór fram í Las Vegas um helgina og stjörnurnar flykktust til ey...  

Meira
Tíska og hönnun 23. maí. 2012 11:00

Stella McCartney hannar brúđarkjól Sólveigar Kára

Fatahönnuđurinn Stella McCartney hannar brúđarkjól Sólveigar Káradóttur en hún gengur ađ e...  

Meira
Tíska og hönnun 22. maí. 2012 17:00

Óvenjuleg dress

Hvort sem ţađ er Jean Paul Gaultier, Commes des Garçon, Jeremy Scott, Issey Miyake eđa Thi...  

Meira
Tíska og hönnun 22. maí. 2012 13:30

Scarlett í Dolce&Gabbana

Leikkonan Scarlett Johansson, 27 ára, var mynduđ viđ tökur......  

Meira
Tíska og hönnun 22. maí. 2012 09:49

Undirfataverslun opnar í Kringlunni

Međfylgjandi myndir voru teknar ţegar ný undirfataverslun, Boux Avenue, opnađi í Kringlunn...  

Meira
Tíska og hönnun 21. maí. 2012 18:00

Diane Kruger skein skćrt á rauđa dreglinum

Leikkonan Diane Kruger skein skćrt á rauđa dreglinum á frönsku kvikmyndahátíđinni í Cannes...  

Meira
Tíska og hönnun 21. maí. 2012 10:45

Fallegustu kjólar vikunnar

Fallegustu kjólar vikunnar ef ekki ársins hafa veriđ valdir af pressunni vestanhafs....  

Meira
Tíska og hönnun 18. maí. 2012 11:45

Veldu réttu sólgleraugun fyrir sumariđ

Ţađ er sá tími ársins sem fólk dregur upp sólgleraugun á ný....  

Meira
Tíska og hönnun 16. maí. 2012 13:00

Chanel kynnti nýjungar í Frakklandi

Chanel kynnti undurfagrar nýjungar fyrir nćstkomandi haust í Versailles í Frakklandi í gćr...  

Meira
Tíska og hönnun 16. maí. 2012 15:00

Hannar tćknileg föt

Fatahönnuđurinn Nicola Formichetti hyggst hanna fatalínu undir eigin nafni. Formichetti va...  

Meira
Tíska og hönnun 15. maí. 2012 17:30

Munstrađir kjólar vinsćlir

Leikkonurnar Christina Hendricks, 37 ára, og Sofia Vergara, 39 ára, eru hrifnar af síđum m...  

Meira
Tíska og hönnun 14. maí. 2012 20:43

Stella McCartney leitar jafnvćgis

Breski hönnuđurinn Stella McCartney segir hönnun sína ganga út á jafnvćgi í ár....  

Meira
Tíska og hönnun 14. maí. 2012 16:00

Stćrra og grófara skart međ haustinu

Ţrátt fyrir ađ sumariđ sé rétt ađ hefjast birtast nú tískustraumar nćsta hausts og vetrar ...  

Meira
Tíska og hönnun 12. maí. 2012 13:00

Ber virđingu fyrir gömlu og góđu

"Viđ berum mikla virđingu fyrir ţjóđbúningnum en viđ viljum reyna ađ nútímavćđa hann og ge...  

Meira
Tíska og hönnun 11. maí. 2012 10:32

Manolo Blahnik frumsýnir nýja skólínu

Stórstjarna skóiđnađarins, sjálfur Manolo Blahnik frumsýndi nýja skólínu í tískuborginni M...  

Meira
Tíska og hönnun 11. maí. 2012 18:15

Englar Victoriu Secret sýna nýja undirfatalínu

Fyrirsćturnar Lindsay Ellingson, Doutzen Kroes, og Erin Heatherton stilltu sér upp fyrir u...  

Meira
Tíska og hönnun 10. maí. 2012 11:30

Best og verst klćddu á Met-ballinu

Rauđa dreglinum var rúllađ út í New York í vikunni er hiđ árlega galakvöld Metropolitan-sa...  

Meira
Tíska og hönnun 10. maí. 2012 08:07

Funheit lína Fendi

Ef myndirnar eru skođađar af haustlínu tískuhússins Fendi má sjá yfirhönnuđinn Karl Lagerf...  

Meira
Tíska og hönnun 08. maí. 2012 12:30

Heidi Klum glćsileg í blárri blúndu

Ofurfyrirsćtan Heidi Klum var ein ţeirra sem bar af á galakvöldi Metropolitan safnsins í N...  

Meira
Tíska og hönnun 07. maí. 2012 17:30

Stjörnustílistinn Rachel Zoe í SoHo

Stjörnustílistinn Rachel Zoe og eiginmađur hennar Rodger Berman voru á ferđinni í New York...  

Meira
Tíska og hönnun 07. maí. 2012 10:30

Kjólar vikunnar

Stjörnurnar komu víđa saman í Hollywood í síđustu viku og ađ vanda fer pressan yfir ţćr be...  

Meira
Tíska og hönnun 07. maí. 2012 08:00

Johnson gjaldţrota

Fyrirtćki fatahönnuđarins Betsey Johnson hefur óskađ eftir gjaldţrotaskiptum samkvćmt frét...  

Meira
Tíska og hönnun 06. maí. 2012 14:42

Mynduđ fyrir Acne

Enn berast fregnir af sigrum fyrirsćtunnar Kolfinnu Kristófersdóttur sem er komin á fullt ...  

Meira
Tíska og hönnun 04. maí. 2012 20:00

Ţurfti ađ bíđa í hálft ár međ ađ segja frá sigrinum

Birta Ísólfsdóttir, fatahönnuđur, bar sigur úr býtum í hönnunarkeppninni Hannađ fyrir Ísla...  

Meira
Tíska og hönnun 04. maí. 2012 07:00

Anna Dello Russo hannar fyrir H&M

Ritstjórinn og tískufyrirmyndin Anna Dello Russo er ađ fara í samstarf viđ sćnsku verslana...  

Meira
Tíska og hönnun 03. maí. 2012 15:30

Dreymdi Lagerfeld

Sjónvarpskonan Alexa Chung vaknađi í gćrmorgun eftir undarlegan draum og ákvađ ađ deila in...  

Meira
Tíska og hönnun 03. maí. 2012 12:30

Kristen Stewart valin best klćdda kona Bretlands

Tímaritiđ Glamour Magazine hefur kosiđ best klćddu konu Bretlands en ţađ er Twilight-stjar...  

Meira
Tíska og hönnun 29. apr. 2012 15:00

Rósótt ţema í tískupartýi

Tribeca-kvikmyndahátíđin stendur ţessa dagana yfir í New York en margmenni er statt í borg...  

Meira
Tíska og hönnun 29. apr. 2012 11:00

Myndar allt fyrir danska hönnuđinn Henrik Vibskov

"Ţetta er mjög gaman og ég er umvafinn jákvćđu og listrćnu fólki hérna,“ segir ljósm...  

Meira
Tíska og hönnun 27. apr. 2012 16:45

Fyrstu nemendur Elite Fashion Academy útskrifast

Međfylgjandi myndir og myndskeiđ ......  

Meira
Tíska og hönnun 26. apr. 2012 15:13

Hver mun hanna brúđarkjól Angelinu Jolie?

Eins og ţekkt er orđiđ ćtla ţau Brad Pitt og Angelina Jolie ađ ganga í ţađ heilaga á nćstu...  

Meira
Tíska og hönnun 26. apr. 2012 14:00

Settu punktinn yfir I-iđ međ litríkri tösku

Litagleđin ćtlar engan endi ađ taka um ţessar mundir í fatnađi, skóm, töskum og skarti....  

Meira
Tíska og hönnun 26. apr. 2012 08:00

Vandađ vel til verka

Útskriftarsýning fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands var haldin á sumardaginn fyrsta ...  

Meira
Tíska og hönnun 25. apr. 2012 20:36

Litagleđin allsráđandi

Međfylgjandi má sjá haustlínu Matthew Williamson í ár......  

Meira
Tíska og hönnun 25. apr. 2012 14:00

Jean Paul Gaultier hannar fyrir Diet Coke

Listamađurinn Carolyn Roper málađi tvćr breskar fyrirsćtur sem sátu fyrir í glugga verslun...  

Meira
Tíska og hönnun 25. apr. 2012 13:00

Neon litađir skór heitir í sumar

Ţađ er óhćtt ađ segja ađ Neon litir séu sjóđandi heitir um ţessar mundir....  

Meira
Tíska og hönnun 24. apr. 2012 13:00

Flottar í flatbotna skóm

Sumariđ er komiđ og stjörnurnar eru farnar á ströndina í léttum klćđum og flatbotna skóm....  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 16:28

Undursamlegt útsýni úr lúxusíbúđ

Međfylgjandi myndir voru teknar í ţakíbúđ á 31. hćđ í háhýsi sem er stađsett á kletti í Ne...  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 14:15

Naglalakk í öllum regnbogans litum

Naglalökk hafa veriđ mikiđ í tísku síđustu misseri eins og sést hefur hjá Hollywood stjörn...  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 11:00

Fjallađ um Kríu í NY Times

Jóhanna Methúsalemsdóttir, skartgripahönnuđur, sendi nýveriđ frá sér nýja línu sem unnin e...  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 11:00

Fer til New York í sumar

Gyđa Katrín Guđnadóttir sigrađi Eskimo/Next fyrirsćtukeppnina sem haldin var í Hörpu á miđ...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 15:00

Handverk í formi málverks

Helga Sigríđur Valdemarsdóttir myndlistakona á Akureyri notar útsaumsmunstur kvenna í málv...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 13:00

Stubbur á kodda

Ragnhildur Anna Jónsdóttir vinnur barnaföt undir merkinu Jónsdóttir & co. Nýjasta varan er...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 11:00

Íslenska pönnukökupannan fćr andlitslyftingu

Íslenska pönnukökupannan hefur fengiđ andlitslyftingu í međförum fimm íslenskra hönnuđa og...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 08:00

Ástríđa fyrir skarti og ţjóđbúningum

Hjónin Guđrún Hildur Rosenkjćr og Ásmundur Kristjánsson hafa sérhćft sig í gerđ ţjóđbúning...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 14:21

Haustlína Gucci einkennist af sjálfstrausti

Frida Giannini hönnuđur Gucci lét hafa eftir sér ađ orđiđ rómantík hafi veriđ notađ baksvi...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 13:00

Next-stúlkan valin í Hörpunni

Eskimo/Next-fyrirsćtukeppnin fór fram í Hörpu á síđasta degi vetrar. Tíu stúlkur tóku ţátt...  

Meira
Tíska og hönnun 21. apr. 2012 16:00

Í eina sćng međ Mac

Snyrtivöruframleiđandinn Mac mun senda frá sér nýja línu í haust sem unnin er í samstarfi ...  

Meira
Tíska og hönnun 16. apr. 2012 13:45

Dýramynstur heitt í Hollywood

Eins og sjá má í međfylgjandi myndasafni er dýramynstur heitt í Hollywood......  

Meira
Tarot
Hugsađu ţér, eđa skrifađu spurningu og dragđu ţér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Lífiđ - Yfir / Tíska og hönnun / Synirnir eru bestu vinir mínir