Sýning ása í þrot og Eden mun opna á ný 30. apríl 2010 03:30 Sýning byggð á germanskri heimsmynd og ásatrú var opnuð í júlí í fyrra og nafni Eden breytt í Iðavelli. Útlit er fyrir að Eden-nafnið verði tekið upp aftur.
Rekstur ásatrúarsýningar í húsnæði Eden í Hveragerði er kominn í þrot og starfseminni var hætt fyrir nokkru. Sparisjóður Suðurlands tók Eden-byggingarnar upp í skuldir í júlí 2008. Frá því í fyrra hafa Dulheimar ehf. rekið þar sýningu um ásatrú, goðheima og forna heimsmynd germanskra manna. Félagið hafði í janúar 2008 fengið vilyrði bæjaryfirvalda fyrir lóð undir Hamrinum í Hveragerði fyrir um fjögur þúsund fermetra byggingu undir skemmti- og fræðslugarð um ásatrúna. Opna átti nýja setrið vorið 2010 undir nafninu Auga Óðins. Áætlanir um uppbygginguna voru stórar. Meðal annars áttu tugir Hvergerðinga að fá atvinnu í setrinu. Úr varð að Auga Óðins fór í smækkaðri mynd inn í Eden í júlí í fyrra undir nafninu Iðavellir. Sett var upp sýning í gróðurhúsahlutanum og minjagripa- og veitingasala var í fremri hlutanum eins og verið hafði. „Þetta er skemmtileg hugmynd og spennandi ábót á mannlífið hér,“ sagði Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, við Fréttablaðið þegar áformin um að opna í Eden voru ljós. „Að sjálfsögðu verða allar hugmyndir kristinna manna um upphaf tilverunnar afmáðar svo Eden-nafnið verður að sjálfsögðu að víkja,“ sagði Guðbrandur Gíslason hjá Dulheimum. Pétur Hjaltason, sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði Suðurlands, segir að nú standi yfir viðræður við væntanlegan nýjan leigutaka. Vonast sé til að aftur verði hægt að hefja rekstur í húsinu seinni partinn í maí. „Það eru aðilar að taka þetta á leigu sem ætla sér að vera þarna með rekstur sem verður ekki ósvipaður því sem Eden var áður,“ segir Pétur. „En það er ekki í hendi fyrr en það er í hendi,“ ítrekar hann. Eins og áður segir eignaðist Sparisjóður Suðurlands Eden í júlí 2008 vegna skulda fyrri eiganda. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins áttu Dulheimar að greiða yfir 1,6 milljónir króna á mánuði í leigu fyrir húsið og reyndist það félaginu of stór biti. „Það er allt skellur,“ svarar Pétur sparisjóðsstjóri aðspurður hvort viðskiptin með byggingarnar hafi reynst mikill skellur fyrir sparisjóðinn. Guðbrandur Gíslason hjá Dulheimum vildi í gær ekki tjá sig um afdrif Iðavalla og hugsanlegt framhald starfseminnar. gar@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira