Tónlist

Syngur á ensku um leyndardóma fortíðar

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Steinunni þykir gaman að ferðast og vonast til að nokkur lög á ensku eigi eftir að verða til þess að hún fái fleiri tækifæri til að fara til útlanda að spila.
Steinunni þykir gaman að ferðast og vonast til að nokkur lög á ensku eigi eftir að verða til þess að hún fái fleiri tækifæri til að fara til útlanda að spila. Mynd/Chad Kamenshine
Steinunn Harðardóttir, eða dj flugvél og geimskip, var að senda frá sér nýtt lag þar sem hún syngur á ensku um leyndardóma svingsins. Hún stefnir á að gefa út myndband við lagið í næstu viku og er líka að vinna að plötu sem fjallar um dularfullu borgina Atlantis.



Af hverju er lagið á ensku?


„Það er á ensku út af því að í fyrra þá fór ég að spila í útlöndum rosa mikið og mig langaði til að fólkið gæti skilið hvað ég væri að syngja um – mér fannst geðveikt gaman að ferðast í útlöndum og ég hugsaði að ég myndi fá að spila meira í útlöndum ef ég syngi á ensku líka. Ég vil líka gefa út næstu plötu út um allt – í alls konar útlöndum og þá langar mig til að fólk alls staðar geti skilið hana.

Svo er annar kostur við að hafa lagið á ensku, þá tengir fólk ekki strax við að lagið sé frá Íslandi og þá er lagið hlutlausara. Svo er stór hluti tónlistarinnar minnar sögur og ég vil að fólk geti skilið textann og hann setji mann á ákveðinn stað strax.“

Kápan utan um nýjasta smell dj flugvélar og geimskips.
Um hvað er lagið? 

„Það er um svingsinn í Egyptalandi.“

Af hverju svingsinn? 

„Ég geri alltaf lög um það sem mér finnst skemmtilegt hverju sinni og hvað ég er að pæla. Ég er búin að gera einn disk um geiminn og einn disk um hafsbotninn og nú er ég að gera nýjan disk og þetta er fyrsta lagið á þeim disk og hann á að vera um Atlantis – sem blandar eiginlega saman hafsbotninum og geimnum.

Samkvæmt goðsögum var Atlantis rosalega þróuð og hátæknileg borg sem var með „portöl“ út í geiminn út um allt og síðan sökk hún niður á hafsbotninn. Það er verið að tala um að svingsinn sem er í Egyptalandi hafi að geyma alls konar leyndardóma undir loppunum á sér, þar séu leyniherbergi sem geymi upplýsingar um Atlantis og að svingsinn sé jafn gamall og Atlantis sem var til fyrir tugum þúsunda ára og að fólkið í Atlantis hafi byggt svingsinn eða þá að svingsinn hafi verið lifandi og síðan orðið að steini. Þannig að hann sé í rauninni okkar hlekkur til Atlantis – okkar hlekkur til glæstrar fortíðar og kannski einhverrar tæknialdar sem var – það eru kenningar sem segja að svingsinn sé miklu eldri en pýramídarnir því að það sé búið að rigna fullt á hann og það hefur ekki rignt í Sahara síðan fyrir ísöld. Þannig að það eru miklar vísbendingar um að hann sé ævaforn.“

Hvernig gengur nýja platan? 

„Ég er komin vel á veg – en ég er ekki búin með öll lögin. Ég ætla sko að hafa tólf lög. Það er góð tala. Ég er að vona að ég nái að klára þetta fyrir október.“

Af hverju október?

„Ég er alltaf að reikna út númerólógíu-dót. En það er líka gott að setja sér tímasetningu til að klára hlutina. Það er tíundi mánuðurinn – tíu er góð tala, tala til að klára hlutina. Hún þýðir „ókei, þetta er tilbúið“. Síðan er gott að gefa út á veturna, þá getur platan fylgt manni inn í vetrarþunglyndið.“

Steinunn stefnir á að gefa út myndband við lagið í næstu viku og ætlar að spila á Norðanpaunk-hátíðinni um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×