Enski boltinn

Sýndi Sturridge miðfingurinn | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ungur stuðningsmaður Southampon hafði nákvæmlega engan húmor fyrir öðru marki Liverpool á móti hans mönnum í leik liðanna á St. Marys í dag.

Eftir að Philippe Coutinho kom Liverpool í 1-0 bætti Sturridge við öðru markinu eftir vel útfærða skyndisókn gestanna. Liverpool gat verið 4-0 yfir á þeim tímapunkti en heimamenn voru arfadaprir í fyrri hálfleik.

Stuðningsmaðurinn ungi rak miðfingurinn á loft í átt að Sturridge er enski landsliðsmaðurinn fagnaði markinu með stæl. Ekki fallega gert.

Faðir hans var fljótur að toga hönd stráksins niður enda svona tilburðir ekki til útflutnings.

Þetta skondna atvik má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×