Viðskipti innlent

Sýndarveruleikaleikur CCP kominn út

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Leiksins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu.
Leiksins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Mynd/CCP
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP gaf í dag út sýndarveruleikaleikinn EVE:Valkyre út. Leiksins heffur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og hefur verið lengi í þróun.

Leikurinn byggir á nýrri tækni á sviði sýndarveruleika (e. virtual reality) þar sem spilurum er gefinn kostur á að gerast flugmenn í geimskipum í EVE heiminum. Er hann spilaður með sérstökum sýndarveruleikaabúnaði.

Sjá einnig: Á framandi slóðum

Leikurinn er hraður og óvæginn þar sem spilarar eigast við í skotbardögum. Sýndarveruleikinn sem leikjahönnun EVE: Valkyrie byggir á gerir upplifunina einstaklega raunverulega og þannig úr garði gerða að það er engu líkara en spilari leiksins sé kominn í flugstjórasæti geimskipsins, þar sem hann mætir óvinum sínum og hættum.

Sjá einnig: EVE:Valkyrie vinnur til verðlauna

CCP kynnti EVE: Valkyrie til leiks í ágúst 2013 og leikurinn sló eftirminnilega í gegn á Fanfest á síðasta ári. Aðeins örfáir leikir hafa verið þróaðir frá grunni fyrir sýndarveruleikagleraugu og því eru leikjaframleiðendur á framandi slóðum í þessum efnum.

Leikurinn kemur út á PlayStation 4 fyrir nýjan sýndarveruleikabúnað SONY (Morpheus) og Oculus Rift sýndarveruleikagræju Oculus VR fyrir PC-tölvur en fyrstu eintök þess voru afhent í dag.

EVE: Valkyrie is now available on Oculus Rift. Welcome to the next life! Read the launch day blog: http://bit.ly/1SqZlCg

Posted by EVE: Valkyrie on Monday, 28 March 2016

Tengdar fréttir

Sýndarveruleiki það sem koma skal

EVE Fanfest hátíðin hófst í dag í ellefta sinn og stendur fram yfir helgi. Í ár leggur tölvuleikjafyrirtækið CCP áherslu á nýjustu tilraunir sínar á sviði sýndarveruleika.

Eve Valkyrie vinnur til verðlauna

EVE: Valkyrie, nýr tölvuleikur sem væntanlegur er frá CCP, hlaut verðlaun á E3 ráðstefnunni sem nýlokið er í Los Angeles.

Á framandi slóðum

Hliðarverkefni lítils hóps innan CCP er nú orðið að raunverulegu alheimsfyrirbæri. Fyrirtækið kynnir nýja útgáfu af EVE: Valkyrie á Fanfest um helgina og boðar byltingu í sýndarveruleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×