Lífið

Sýna landsleikinn á risaskjá í Óðinsvéum

Atli Ísleifsson skrifar
Úr höfninni í Óðinsvéum.
Úr höfninni í Óðinsvéum. Mynd/Íslendingafélagið í Óðinsvéum
Risaskjá verður komið upp á hafnarsvæðinu í Óðinsvéum þar sem landsleikur Íslands og Englands verður sýndur í kvöld.

Norðuratlantshafshúsið í Óðinsvéum hefur ákveðið að koma upp skjánum í samstarfi við Íslendingafélagið í borginni og veitingarstaðinn Restaurant Nordatlanten.

Í tilkynningu segir að Íslendingafélagið í Óðinsvéum hafi sýnt leikina fyrir félagsmenn þess. Salur Norðuratlantshafshússins hafi þar fyllst af hressum Íslendingum, forvitnum Grænlendingum og spenntum Dönum og hafi því verið ákveðið að koma upp risaskjánum.

Upphitun hefst klukkan 20 að staðartíma og hefst leikurinn klukkustund síðar. Reiknað er með sól og góðu veðri og frábærri stemningu, að því er segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×