Lífið

Sýna hið rétta andlit Breiðholts

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Æskuvinkonurnar Þorbjörg og Hrefna í hverfinu sínu en þær vilja sýna rétt andlit Breiðholts á sýningu sinni í Galleríi Tukt.
Æskuvinkonurnar Þorbjörg og Hrefna í hverfinu sínu en þær vilja sýna rétt andlit Breiðholts á sýningu sinni í Galleríi Tukt. vísir/stefán
Æskuvinkonurnar Hrefna og Þorbjörg eru báðar aldar upp í Breiðholti, nánar tiltekið í Hólunum. Þeim hefur fundist í gegnum tíðina vera gefin röng mynd af hverfinu.

„Þar til við fórum í menntaskóla höfðum við bara verið í hverfinu og upplifað það sem ósköp venjulegt hverfi sem gott er að alast upp í. Síðan byrjuðum við í menntaskóla og þegar við sögðumst vera úr Breiðholti fengum við oft þau viðbrögð að það væri gettó eða hættulegt hverfi. Okkur fannst við ekkert koma úr gettói. Þannig að við ákváðum að fara á stúfana og skoða þetta betur,“ segir Þorbjörg.

Úr varð sýningin Andlit Breiðholts sem var verið að opna í Galleríi Tukt. Á sýningunni eru ljósmyndir, vídeóverk og viðtöl við fólk sem býr eða vinnur í Breiðholti og er það spurt um kosti og galla hverfisins.

„Við töluðum við fólk í Mjódd og Hólagarði og eiginlega allir sem við töluðum við voru mjög jákvæðir og líður mjög vel í hverfinu. Það kannaðist ekkert við þetta gettó heldur. Þetta virðist bara vera orðspor á hverfinu og okkur finnst gott að koma með aðra hlið – hliðina frá þeim sem virkilega þekkja hverfið.“

Hvorug þeirra býr í Breiðholti eins og stendur. Þær vildu báðar flytja nær miðbænum en Þorbjörg segist vel geta hugsað sér að flytja aftur í Breiðholtið seinna meir.

„Ég á mjög góðar minningar úr Breiðholti. Ég átti heim rétt hjá Elliðaárdalnum og það var stutt að labba þangað. Ég upplifi þetta sem rólegt hverfi og myndi alveg vilja ala upp börnin mín þar. Auðvitað leynast graffítíveggir og sóðaleg skúmaskot í Breiðholti eins og annars staðar en gettó geta líka verið kúl. Nú er Nýlistasafnið komið í Fellahverfið. Kannski breytast Fellin í listamannahverfi, svona eins og Brooklyn í New York.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×