Menning

Sýna beint frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í tilefni afmælis hennar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sinfóníuhljómsveit Íslands fagnar afmæli í dag.
Sinfóníuhljómsveit Íslands fagnar afmæli í dag. vísir/valli
Sinfóníuhljómsveit Íslands fagnar 67 ára afmæli sínu í dag en fyrstu tónleikar sveitarinnar voru í Austurbæjarbíó þann 9. mars 1950.

Í tilefni dagsins verða tónleikar hljómsveitarinnar í kvöld teknir upp í mynd og sendir beint út frá Eldborg í Hörpu. Hægt verður að horfa á streymið á vef Sinfóníuhljómsveitarinnar, sinfonia.is, og hefst útsendingin klukkan 19:25 og tónleikarnir sjálfir klukkan 19:30.

Margrét Ragnarsdóttir, markaðs-og kynningarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, segir í samtali við Vísi að þetta sé annað sinn í vetur sem streymt er beint frá tónleikunum. Það mældist vel fyrir seinast og því hafi verið ákveðið að prófa þetta aftur og nú í tilefni afmælisins.

Tónleikarnir í kvöld eru tileinkaðir píanókonsertum Beethoven og verður einleikari enski verðlaunapíanistinn Paul Lewis. Hljómsveitarstjóri verður Matthew Halls.

„Þetta eru fyrstu tónleikarnir í píanókonsertahring en á næsta tónleikaári verða tvennir tónleikar til viðbótar með sama einleikara,“ segir Margrét.

Aðspurð hvernig aðsóknin er á tónleika sveitarinnar segir Margrét að hún sé alltaf að aukast og að gestum hafi ekki hvað síst fjölgað eftir að hljómsveitin flutti í Hörpu. Þá komi nokkuð af erlendum ferðamönnum einnig á tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar.

„Við sjáum það því að ferðamenn koma mikið í Hörpu og svo er einnig nokkuð um það að þeir kaupi miða áður en þeir koma til landsins. Ég held að það séu svona fimm til tíu prósent tónleikagesta erlendir gestir,“ segir Margrét. 

Fylgjast má með tónleikunum í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×