Formúla 1

Symonds: Brotthvarf Bottas hefði mikil áhrif á Williams

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Pat Symonds, tæknistjóri Williams liðsins.
Pat Symonds, tæknistjóri Williams liðsins. Vísir/Getty
Tæknistjóri Williams, Pat Symonds telur að það myndi hafa mikil áhrif á liðið að missa ökumanninn Valtteri Bottas til Mercedes. Bottas þykir líklegastur til að taka laust sæti hjá heimsmeisturunum.

Bottas er samningsbundinn Williams en fregnir herma að hann sé fyrstur á óskalista heimsmeistaranna, eftir að Nico Rosberg ákvað að hætta akstri í Formúlu 1.

Bottas skrifaði raunar undir nýjan samning hjá Williams í nóvember. Williams liðið hefur hafnað fyrsta tilboði Mercedes liðsins í ökumanninn, ef marka má orðróm um málið.

Symonds segir afar mikilvægt að hafa reynslumikinn ökumann eins og Bottas í liðinu, sérstaklega þar sem miklar reglubreytingar eru framundan. Bottas geti verið mikilvægur hlekkur í því að koma nýliðanum Lance Stroll sem fyrst í réttan gír.

Stroll verður ökumaður Williams liðsins, en Felipe Massa hætti með liðinu eftir tímabilið. Það má ætla að Williams gæti farið flatt á því að vera með tvo nýliða innanborðs.

„Fólk vanmetur oft mikilvægi stöðugleikans innan liðsins. Þrátt fyrir öll þau mælitæki sem við höfum er ökumaðurinn alltaf lykilhlekkur í keðjunni á milli verkfræðinganna og gagnanna sem mælingar sýna,“ sagði Symonds í samtali við Gazzetta dello Sport.

„Það er hægt að skipta út öðrum ökumanninum en það er mikilvægt að hafa hinn sem mælistiku, sérstaklega þegar reglurnar eru að breytast eins og gerist 2017. Brotthvarf Bottas hefði mikil áhrif á liðið,“ sagði Symonds að lokum.


Tengdar fréttir

Alonso: Ég vil verða heimsmeistari með McLaren-Honda

Fernando Alonso ökumaður McLaren liðsins sagði starfsfólki liðsins að hann væri ekki á förum frá liðinu. Þrátt fyrir orðróm um að hann væri líklegur til að fylla sæti Nico Rosberg hjá Mercedes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×