Viðskipti innlent

Sylvía Rut nýr ritstjóri Nýs Lífs

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
Sylvía Rut Sigfúsdóttir Mynd/Nýtt Líf
Sylvía Rut Sigfúsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri tímaritsins Nýtt Líf. Sylvía Rut hefur starfað hjá Pressunni frá því í júní 2013 en fyrirtækið hefur fest kaup á öllu hlutafé í Birtingi og tekur nú við útgáfu á tímaritum fyrirtækisins.

Sylvía Rut er með meistaragráðu í fjölmiðlafræði frá Kaupmannahafnarháskóla og er einnig lærður förðunarfræðingur. Sylvía Rut hefur ritstýrt Bleikt frá árinu 2014 og einnig Pressunni frá því á síðasta ári en lætur nú af þeim störfum. Hún tekur við sem ritstjóri Nýs Lífs af Ernu Hreinsdóttur, sem lét af störfum um síðustu áramót,

Þá mun Sylvía Rut einnig sjá um ýmis önnur verkefni tengd tímaritum Birtings en hún hefur störf á næstu dögum.

„Ég er mjög spennt að takast á við þetta krefjandi verkefni. Nýtt Líf er tímarit sem á sér langa og áhugaverða sögu en fyrsta tölublaðið kom út árið 1978. Það verður skemmtilegt að halda áfram að þróa þetta tímarit og kynna fyrir lesendum spennandi nýjungar,“ segir Sylvía Rut í tilkynningu.

„Það er gríðarlega mikið af hæfileikaríku fólki sem starfar í kringum tímarit Birtings og hlakka ég mikið til samstarfsins með þeim. Það eru miklir möguleikar í þessum fjölbreyttu tímaritum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×