Matur

Sykurfíkill að eigin sögn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Matgæðingurinn Lindsay heldur úti matarblogginu Life, Love & Sugar og er mikill sykurfíkill að eigin sögn. Hún elskar að baka stórkostlegar kökur og skreyta þær á undraverðan hátt en myndirnar á síðunni eru listaverk út af fyrir sig.

Þá er hún líka óhrædd við að prufa sig áfram í eldamennsku og elskar að prófa nýjar uppskriftir að kvöldmat fyrir fjölskylduna.

Á blogginu deilir hún líka lífsreynslu sinni með lesendum en hún leggur mikið upp úr því að lenda í ýmiss konar skemmtilegum ævintýrum með fjölskyldu sinni eins oft og hún hefur tíma til.

Lindsay elskar Disney og dans, hatar þegar matur fer til spillis og er með fullkomnunaráráttu á hæsta stigi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×