Sýknun í tálbeitumáli

Vísir Kompás 31. október 2007 09:50
Sýknun í tálbeitumáli
Mynd/Stöđ 2

Í síðustu viku voru þrír menn sýknaðir af ákæru um kynferðisbrot fyrir að hafa ætlað að fara á fund unglingsstúlku með það í huga að eiga við hana kynferðislegt samneyti. Við lögreglurannsókn og saksókn var byggt á Kompásþætti frá í janúar þar sem þessir menn komu innfyrir þröskuld íbúðar og töldu sig vera á leið á stefnumót við unglingsstúlku. Þeir höfðu fallið fyrir tálbeitu Kompáss á netinu.

Markmið Kompás var að sýna hversu langt fullorðnir karlmenn voru tilbúnir að ganga til komast í kynferðissambönd við börn og hvernig þeir nýta sér netið til slíkrar tælingar. Tekið skal fram að íslenskri lögreglu er óheimilt að nota tálbeituaðferð eins og þá sem Kompás beitti. Engu að síður reyndi saksóknari að byggja á gögnum Kompás en dómari taldi þau gögn tæpast tæk til sakfellingar. Í liðnum mánuði benti Kompás á að svíar væru að breyta löggjöf sinni í þá veru að það væri saknæmt að setja sig í samband við börn í kynferðislegum tilgangi og jafnframt að vilji væri til þess innan allra stjórnmálaflokka á þingi hér að setja sambærilegt ákvæði í lög. Sýknudómur héraðsdóms, sem verður áfrýjað, er væntanlega löggjafanum hvatning til að aðlaga löggjöf að hættum netsins, jafnframt að íhuga hvort lögregla þarf ríkari heimildir til að nota tálbeitur til þess að koma lögum yfir barnaníðinga.

Hvað sem líður lagatæknilegum hliðum málsins mun Kompás hvergi hvika frá því að leggja sitt af mörkum til að uppræta þá viðurstyggð og samfélagsskömm sem barnaníð er. Kompás hvetur foreldra til að vera vakandi yfir netnotkun barna sinna.

 


Fleiri fréttir - Kompás

  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Skođun

Á Heimaey betur heima í ríkissjóđi?

Á Heimaey betur heima í ríkissjóđi?

Ţorsteinn Pálsson
Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hrukku í kút ţega...

Skođun

Bankablús

Bankablús

Ólafur Ţ. Stephensen
Viđbúiđ var ađ rekiđ yrđi upp margraddađ ramakvein ţegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagnir og lokun úti...

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Kompás / Sýknun í tálbeitumáli