Lífið

Swift sækir um einkaleyfi

Taylor Swift Hefur sótt um einkaleyfi á textabrotum úr lögum af 1989.
Taylor Swift Hefur sótt um einkaleyfi á textabrotum úr lögum af 1989. Nordicphotos/Getty
Taylor Swift hefur sótt um einkaleyfi á textabrotum úr lögum af plötu sinni 1989, sem hefur notið mikilla vinsælda. Fyrst ber að nefna textann „Party like it"s 1989“ sem hún vill ekki að neinn annar en hún noti.

Á meðal annarra textabrota eru: „This sick beat“, „Nice to meet you, where you been?“, „cause we never go out of style“ og „could show you incredible things“.

Stutt er síðan hin 25 ára Swift var í fréttum eftir að einhver hakkaði sig inn á Twitter-síðuna hennar og sendi póst á 51 milljón fylgjenda hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×