Enski boltinn

Swansea vann án Gylfa

Svanirnir fagna sigurmarkinu.
Svanirnir fagna sigurmarkinu. Vísir/Getty
Swansea vann mikilvægan sigur á Burnley í einum af sex leikjum dagsins í enska boltanum. Sjálfsmark réði úrslitum.

Kieran Trippier varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar 65. mínútur voru liðnar af leiknum og varð það eina markið sem leit dagsins ljós.

Gylfi Sigurðsson lék ekki með Swansea vegna meiðsla.

Swansea er í áttunda sætinu með 40 stig, en Burnley er í átjánda sætinu með 22 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×