Tíska og hönnun

Svona var stemningin á opnun Hönnunarmars - Myndir

Bjarki Ármannsson skrifar
Fyrirlestradagurinn DesignTalks var haldinn í gær en sá dagur markar upphaf hátíðarinnar Hönnunarmars ár hvert. Hátíðin stendur yfir fram á sunnudag en hún er nú haldin í áttunda sinn.

Rúmlega hundrað viðburðir eru á dagskrá, þar á meðal sýningar, fyrirlestrar, uppákomur og innsetningar. Viðburðir eru skipulagðir af íslenskum hönnuðum og arkitektum og telja þátttakendur hátíðarinnar um fjögur hundruð manns ár hvert.

Anton Brink ljósmyndari fór á opnun Hönnunarmars í gær og hitti fyrir góðan hóp fólks, meðal annarra þau Ragnheiði Elínu Árnadóttur viðskiptaráðherra, Kolbrúnu Bergþórsdóttur leikstjóra og Gísla Martein Baldursson sjónvarpsmann.

Vísir/Anton Brink
Vísir/Anton Brink
Vísir/Anton Brink
Vísir/Anton Brink

Tengdar fréttir

Óttast um klósettslys á Hönnunarmars

Skólpkerfi Vonarstrætis 4b, þar sem Hönnunarmiðstöð er til húsa, er við það að gefa sig og starfsfólk hefur fjórum sinnum þurft að kalla til sérfræðinga.

Útilistaverk Sigga Odds frumsýnt

Norr11 frumsýndi í tilefni af Hönnunarmars útilistaverk hannað af Sigga Odds á Hverfisgötu í portinu beint á móti Þjóðleikhúsinu síðdegis í dag.

Sturla Atlas hellir sér í vatnið

Sigurbjartur söngvari Sturlu Atlas er með sýningu á Hönnunarmars sem ber nafnið Sturla Aqua. Hann segir það óráðið hvað það verði og útilokar ekki að hella sér í framleiðslu vatnsflaska.

Húfukollan fær þrenns konar yfirhalningu

Samstarf leturútgáfunnar Or Type og fyrirtækisins 66°Norður verður frumsýnt í dag. Ein af hinum þremur nýju hönnunum húfukollunnar sækir innblástur sinn í gamlar samskiptaleiðir sjómanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×