Handbolti

Svona var reglunum breytt hjá IHF

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hassan Moustafa, forseti IHF.
Hassan Moustafa, forseti IHF. Vísir/Getty
Arne Elovsson, varaforseti Handknattleikssambands Evrópu, útskýrir í samtali við Ívar Benediktsson í Morgunblaðinu í dag hvernig reglunum var breytt hjá Alþjóðahandknattleikssambandinu, IHF, sem varð til þess að Þýskalandi var hleypt inn á HM í Katar.

Á þriðjudaginn kom svokallað IHF-ráð saman í Zagreb í Króatíu en Elovsson er einn átján manna sem á sæti í ráðinu. Fyrir ráðinu lágu nokkrar reglubreytingatillögur frá framkvæmdastjórn IHF en þær voru allar samþykktar, líkt og nánast alltaf er gert.

Í framkvæmdastjórn IHF sitja fimm manns, þar af forseti, varaforseti og gjaldkeri IHF. Þar voru allar reglubreytingar hannaðar sem urðu til þess að Þýskaland komst á HM á kostnað Eyjaálfu.

„Fyrsta mál á fundi ráðsins var að afgreiða nýjar reglur sem framkvæmdastjórn IHF hafði unnið að frá því í vor þess efnis að ráðið gæti hafnað þátttöku frá þjóðum sem hefðu svo veikt landslið að það væri slæmt fyrir ímynd heimsmeistaramóta. Sú tillaga var samþykkt,“ sagði Elovsson.

„Því næst var samþykkt að afturkalla keppnisleyfi Eyjaálfu á HM. Það var ekki nóg að afturkalla keppnisrétt Ástralíu því þar með var Nýja-Sjáland næsti kostur frá álfunni.“

Næsta tillaga sneri að því að breyta þeim reglum sem mestu málu skipti fyrir aðkomu Íslands að málinu. Gömlu reglurnar sögðu að ef keppnisréttur heimsálfu yrði afturkallaður fengi fyrsta varaþjóð frá sömu heimsálfu og ríkjandi heimsmeistarar sæti viðkomandi á HM. Það var Ísland.

En nú var lögð fram tillaga sem sagði að litið yrði til árangurs á síðasta heimsmeistaramóti og því liði hleypt inn sem bestum árangri náði af þeim sem féllu úr leik í undankeppni HM. Það var Þýskaland sem hafnaði í fimmta sæti á HM í Spáni.

Þess má geta að ef önnur þjóð gengur úr skaftinu fyrir HM í Katar mun Ungverjaland komast næst inn samkvæmt sömu skilgreiningu.

Elovsson vildi ekki gefa upp hvernig atkvæðin skiptust innan ráðsins en hann sagðist þó hafa verið samþykkur breytingunum. „Þegar ég tók afstöðu til þessa máls spurði ég mig þriggja spurninga: Var farið eftir lögum? Er þessi breyting góð fyrir handboltann? Er þetta betra fyrir evrópskan handbolta? Svarið við öllum spurningum er já, að mínu viti.“

Hann bendir enn fremur á að handboltaforystan hafi byrjað að velta fyrir sér þátttöku smáliða líkt og Ástralíu eftir HM á Spáni. Liðið hafi tapað öllum leikjum sínum þar líkt og í fyrri keppnum með miklum mun. Svipað hafi verið upp á teningnum á HM kvenna í Serbíu þar sem Spánn leiddi í hálfleik gegn Paragvæ með fjórtán mörkum gegn engu.

„Eftir HM kvenna í desember í Serbíu hóf framkvæmdastjórn IHF undirbúning að vinnu við að breyta reglunum til að fækka slöku liðunum og lagði þær breytingar fyrir okkur á fundi ráðsins á síðasta þriðjudag þar sem þær voru samþykktar enda höfðu þær áður verið samþykktar í framkvæmdastjórn. Og eftir þeim var unnið,“ sagði Elovsson í samtali við Morgunblaðið í dag.


Tengdar fréttir

Íþróttaljós: Reglugerðin sem enginn vissi af

Alþjóðahandknattleikssambandið breytti reglunum um hvaða þjóð kæmi til vara ef einhver skyldi ekki fá keppnisleyfi, en lét engan vita. Framkvæmdastjóri evrópska sambandsins lætur ritarann svara spurningum fyrir sig.

Laug EHF að handboltaforystu Íslands?

Framkvæmdastjórn Alþjóðahandknattleikssambandsins leggur til breytingar í þröngum fimm manna hring sem nánast undantekningalaust eru samþykktar. Aum svör Evrópska handknattleikssambandsins til HSÍ.

Ísland á að fara dómstólaleiðina

Ritstjóri þýska vikuritsins Handball Woche telur að handboltaforystan á Íslandi eigi að fara með ákvörðun IHF að hleypa Þýskalandi á HM í Katar fyrir dómstóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×