Fótbolti

Svona var blaðamannafundur Wayne Rooney og Roy Hodgson | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Wayne Rooney, fyrirliði enska landsliðsins í fótbolta, og Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englands, sátu fyrir svörum á opinberum UEFA-blaðamannafundi sem hófst klukkan 15.45 að íslenskum tíma.

Blaðamannafundurinn var í beinni útsendingu á Vísi en hér að neðan má finna textalýsingu blaðamanns Vísis frá fundinum. Upptöku má fundinum má finna í spilaranum að ofan.

Enska landsliðið mætir því íslenska í 16 liða úrslitum EM 2016 í Nice á morgun en þetta verður fyrsti mótsleikur liðanna. Liðið sem vinnur leikinn mætir Frakklandi í átta liða úrslitum á Stade de France.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×