Bíó og sjónvarp

Svona lítur Ísland út í söguheimi Halo

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Halo: Nightfall brúar bilið milli Halo 4 og Halo 5: Guardians.
Halo: Nightfall brúar bilið milli Halo 4 og Halo 5: Guardians. VÍSIR/343

Microsoft frumsýndi í dag stiklu fyrir þáttaröðina Halo: Nightfall en hún var að stórum hluta tekin upp á Íslandi fyrr á þessu ári. Serían er hluti af stærstu leikjaútgáfu Microsoft til þessa, Halo: The Master Chief Collection, sem fer í almenna sölu 11. nóvember næstkomandi.

Þáttaröðin er framleidd af Ridley Scott (sem er núna að leika sér í Alien: Isolation) og snýst um hóp sérsveitarmanna sem rannsaka fregnir af nýju efnavopni. Söguhetjan er Mike nokkur Colter en spilarar munu fá að upplifa ævintýri hans í Halo 5: Guardians sem kemur út á næsta ári.

Óhætt er að segja að Ísland skarti ekki sínu fegursta í stiklunni. Kuldaleg náttúra landsins er notuð sem sviðsmynd fyrir Halo-hring þar sem mis jákvæðir atburðir eiga sér stað, ef marka má sýnishornið.

Frá tökum á Halo: Nightfall.VÍSIR/343

Halo: Nightfall brúar bilið milli Halo 4 og Halo 5: Guardians og mun, að sögn Microsoft, hafa frásagnarlega tengingu við fyrirhugaða sjónvarpsþáttaröð byggða á Halo-söguheiminum. Steven Spielberg verður framleiðandi þáttanna.

Halo: The Master Chief Collection er með stærri tölvuleikjaútgáfum þetta árið. Settið inniheldur uppfærðar útgáfur af Halo: CE og Halo 2. Einnig Halo 3 og Halo 4 í 1080p og 60 römmum. Þá er að finna aðgang að betu-útgáfu af Halo 5: Guardians og, eins og áður segir, Halo: Nightfall.

Tímasetning útgáfunnar er nokkuð sérstök. Tölvuleikjaframleiðandinn Bungie, sem á heiðurinn af 5 Halo-leikjum, sagði skilið við söguheiminn fyrir nokkru og gaf út Destiny á dögunum. Þannig verður Bungie í samkeppni við eigin vöru þegar jólavertíðin hefst.

Hægt er að sjá stikluna í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×