Íslenski boltinn

Svona lítur fallbaráttan í Pepsi-deildinni út: Ólsarar ískaldir en Eyjamenn á siglinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
FH getur haft mikil áhrif á fallbaráttuna en fyrrverandi meistararnir eiga eftir að mæta Fjölni, Ólsurum og Blikum.
FH getur haft mikil áhrif á fallbaráttuna en fyrrverandi meistararnir eiga eftir að mæta Fjölni, Ólsurum og Blikum. Vísir/Eyþór
Þegar tvær umferðir (plús leikur Fjölnis og FH á morgun) eru eftir í Pepsi-deild karla í fótbolta eru fimm lið enn þá í fallhættu.

Tölfræðilega má taka sjötta liðið, Víking Reykjavík, inn í dæmið en með sigri á Ólsurum á mánudaginn svo gott sem tryggði Fossvogsliðið sér sæti í deildinni þar sem sex stigum og 17 mörkum munar á Víkingsliðunum tveimur.

Skagamenn lifa enn í voninni en þeir geta fallið í sófanum heima síðdegis á morgun takist Fjölni að hirða stig af FH á heimavelli sínum í Grafarvoginum. Skagamenn eru samt sem áður næst heitasta liðið í fallbaráttunni með sex stig í síðustu fimm leikjum en þar af hefur liðið ekki tapað í þremur leikjum í röð.

Skaginn er sama og fallinn og Fjölnir eru í miklu basli.vísir/ernir

Fjölnir í vandræðum

Fjölnismenn eru í miklum vandræðum en þeir eru búnir að safna fimm stigum í síðustu fimm leikjum og hafa ekki unnið í þremur leikjum í röð. Þeir eiga óárennilegt prógram eftir en Fjölnismanna bíða leikir gegn FH, KR og Grindavík.

Eyjamenn eru heitastir í fallbaráttunni en liðið er búið að vinna þrjá leiki af síðustu fimm, þar af tvo á útivelli og safna níu stigum af fimmtán mögulegum. Stigin 22 sem liðið er komið með dugar liðinu til að halda sæti sínu í deildinni tapi Ólsarar síðustu tveimur leikjum sínum.

Ólafsvíkingar eru ansi líklegir til að kveðja deild þeirra bestu liðið en liðið er það ískaldasta í fallbaráttunni. Lærisveinar Ejubs Purisevic eru aðeins búnir að fá eitt stig af fimmtán mögulegum í síðustu fimm leikjum og er með markatöluna -13 á þeim tíma.

Milos Milojevic er ekki sloppinn við fallið.vísir/anton

Blikar ekki sloppnir

Ólsarar eiga mjög erfiðan leik gegn FH næst og gætu fallið á sunnudaginn með tapi sigri Fjölnir annað hvort FH á morgun eða vængbrotið lið KR í 21. umferðinni. KR verður án Finns Orra Margeirssonar, Pálma Rafns Pálmasonar, Skúla Jóns Friðgeirssonar og André Bjerregaard.

Óvæntasta liðið í fallbaráttunni er Breiðablik sem eru þó búið að safna sex stigum af fimmtán mögulegum í síðustu fimm leikjum. Það var gegn tveimur neðstu liðum deildarinnar; ÍA og Ólafsvík, en Kópavogsliðið er nú búið að tapa þremur leikjum í röð.

Blikar fá sjóðheita Eyjamenn í heimsókn á sunnudaginn og verða enn í fallbaráttu með tapi nái Ólsarar óvæntu stigi eða hvað þá öðrum sigri á móti FH. Strákarnir hans Milosar Milojevic halda sæti sínu í deildinni sama hvað tapi Ólsarar á móti FH.

Stigasöfnun fallbaráttuliðanna í síðustu fimm leikjum:

12. sæti: ÍA

5 stig af 15 mögulegum (Markatala -1)

Ekki tapað í þremur leikjum í röð

Leikir sem liðið á eftir:

Víkingur R. (ú)

Víkingur Ó. (h)

11. sæti: Víkingur Ólafsvík

1 stig af 15 mögulegum (-13)

Ekki unnið í fimm leikjum í röð

Leikir sem liðið á eftir:

FH (h)

ÍA (ú)

10. sæti: Fjölnir

5 stig af 15 mögulegum (-4)

Ekki unnið í þremur leikjum í röð

Leikir sem liðið á eftir:

FH (h)

KR (h)

Grindavík (ú)

9. sæti: ÍBV

9 stig af 15 mögulegum (+3)

Unnið tvo útileiki í síðustu fimm

Leikir sem liðið á eftir:

Breiðablik (ú)

KA (h)

8. sæti: Breiðablik

6 stig af 15 mögulegum (+1)

Tapað þremur leikjum í röð

Leikir sem liðið á eftir:

ÍBV (h)

FH (ú)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×