Formúla 1

Svona líta nýju formúlu eitt bílarnir út | Myndir

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mercedes W06 hefur titilvörn sína í Ástralíu 15. mars.
Mercedes W06 hefur titilvörn sína í Ástralíu 15. mars. Vísir/Getty
Mercedes W06 ók lang lengst allra í dag eða 157 hringi sem verðurað teljast gríðarlega gott á fyrsta degi æfinga. Nýr fjöðrunarbúnaður, ný vél og nýtt kælikerfi virka greinilega vel. Mercedes kann klárlega að smíða kappakstursbíla.

RB11 verður væntanlega fjólublár og gulur þegar ræst verður í Ástralíu.Vísir/Getty
Red Bull afhjúpaði sinn bíl í morgun, hann er í felulitum af ásettu ráði. Bíllinn á ekki að sjást eins vel, eitthvað vill liðið fela af honum eða draga athygli frá nýjum uppfinningum. Hann verður þó ekki í felulitum eftir að æfingum lýkur.

Williams hefur ekki breyst mikið fljótt á litið, enda góður bíll í fyrra, kannski ekki ástæða til róttækra breytinga.Vísir/Getty
Williams bíllinn er mjög svipaður bíl síðasta árs. Helsti munurinn er í fljótu bragði trjónan, henni svipar nú meira til þumals en banana.

Toro Rosso fór aðra leið í fratrjónuhönnun en systurliðið sem er áhugavert.Vísir/Getty
Toro Rosso dró dúkinn af sínum nýja keppnisbíl í dag. Lítið sem ekkert hafði lekið af upplýsingum um bílinn og því var spennan mikil Framendi bílsins er ólíkur framenda systurbílsins, Red Bull, það kemur á óvart. Framtrjónunni svipar mjög til nýrrar trjónu Ferrari bílsins.

Sauber er með svalasta bílinn á brautinni sem stendur að mati blaðamanns. Hvort hann er hraðskreiður á eftir að koma betur í ljós.Vísir/Getty
Sauber er sá bíll sem útlitslega hefur breyst hvað mest. Litirnir eru endurnýjun frá því í byrjun aldarinnar. Blár og gulur og gríðar svalur á brautinni í Jerez. Trjónan á nýja Sauber bílnum er einskonar millstig á milli Ferrari og Williams.

Æfingarnar halda svo áfram á morgun, þá munu Lotus væntanlega mæta til leiks.


Tengdar fréttir

Neale: Fyrri hluti tímabilsins verður erfiður

McLaren hefur sagt að mikil vinna sé fyrir hödum til að komast aftur í toppbaráttuna í Formúlu 1. Helsta forgangsatriðið núna sé að koma nýju Honda vélinni í keppnisform.

20 Formúlu 1 keppnir 2015

Keppnisdagatal ársins hefur tekið breytingum keppnirnar verða 20 en ekki 21 eins og til stóð. Ekkert verður af Kóreu kappakstrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×