Handbolti

Svona léleg var vörnin á móti Hvíta-Rússlandi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Vignir Svavarsson og Alexander Petersson áttu erfiðan dag í vörninni.
Vignir Svavarsson og Alexander Petersson áttu erfiðan dag í vörninni. vísir/valli
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er með bakið upp við vegg á EM í Póllandi eftir hræðilegt, 39-38, tap á móti Hvíta-Rússlandi í gær.

Nú er það bara allt eða ekkert hjá strákunum okkar á móti Króatíu á morgun ef Noregur vinnur Hvíta-Rússland, en ótrúlegt en satt getur íslenska liðið enn farið með fjögur stig í milliriðilinn.

Varnarleikur íslenska liðsins var ævintýralega slakur í gær, sérstaklega síðasta korterið þegar Hvít-Rússarnir skoruðu bókstaflega að vild.

Strákarnir okkar náðu ekki löglegri stöðvun í vörninni (legal stop) eftir 43:40. Aron Rafn Eðvarðsson varði svo síðasta skotið sem íslensku markverðirnir tóku á 44:50. Aron varði reyndar skot þegar tólf mínútur voru eftir en þá var dæmt vítakast sem Hvíta-Rússland skoraði úr.

Fyrirliðinn var svekktur í gær.vísir/valil
Ekki klukkaðir síðustu 16 mín

Lögleg stöðvun er ný pæling í handboltatölfræði sem tölfræðivefsíðan HBStatz.is vinnur með. Hún gefur nýja vídd í skoðun á varnarleiknum og hefur Vísir fengið leyfi til að sækja upplýsingar í gagnagrunninn á meðan mótinu stendur.

Lögleg stöðvun er þegar varnarmaður stöðvar sóknarmann og aðeins er dæmt aukakast, en hann sleppur við að gefa víti, fá gult spjald eða vera rekinn út af.

Sem fyrr segir náðu strákarnir okkar ekki löglegri stöðvun í vörninni síðustu 16 mínútur leiksins og ekki var varið skot sem skilaði Ísland boltanum síðustu 15 mínúturnar.

Þetta stemmir algjörlega við leikinn í gær, en Hvít-Rússarnir tóku afskaplega einfaldar klippingar og skiluðu svo boltanum í markið án þess að varnarmenn Ísland gátu svo mikið sem klukkað þá.

Hvíta-Rússland nýtti tólf af fjórtán síðustu sóknum sínum í leiknum. Einu tvær sóknirnir sem fóru forgörðum hjá Hvíta-Rússlandi var þegar þeir töpuðu boltanum.

Guðmundur Hólmar var með flestar löglegar stöðvanir í gær.vísir/valli
29 og svo 9

Varnarleikur íslenska liðsins á milli leikjanna gegn Noregi og Hvíta-Rússlandi var eins og svart og hvítt og tölfræði sýnir það mjög augljóslega.

Á móti Noregi náðu strákarnir okkar 29 löglegum stöðvunum, þar af náði Alexander Petersson níu og var besti varnarmaður Íslands í leiknum. Íslenska liðið í heild sinni náði aðeins níu löglegum stöðvunum á móti Hvíta-Rússlandi, jafn mörgum og Alexander náði einn á móti Noregi.

Guðmundur Hólmar Helgason var með flestar löglegar stöðvanir á móti Hvíta-Rússlandi eða þrjár. Alexander var svo með tvær líkt og Ásgeir Örn Hallgrímsson.

Ljóst er að strákarnir okkar þurfa að gera mun betur gegn Króatíu á morgun, en með tapi þar og sigri Norðmanna á móti Hvíta-Rússlandi er mótinu lokið hjá íslenska liðinu.

Löglegar stöðvanir á móti Noregi:

Alexander 9

Guðmundur Hólmar 6

Ásgeir Örn 4

Bjarki Már 4

Arnór Atlason 2

Vignir 2

Aron 1

Arnór Þór 1

Samtals: 29

Löglegar stöðvanir á móti Hvíta-Rússlandi:

Guðmundur Hólmar 3

Alexander 2

Ásgeir Örn 2

Bjarki Már 1

Vignir 1

Samtals: 9


Tengdar fréttir

Alexander: Búinn að spila aðeins of mikið

Alexander Petersson hefur spilað mun meira á Evrópumeistaramótinu en til stóð. Hann tjáði íþróttadeild fyrir mót að hann myndi spila korter í leik en það hefur engan veginn gengið eftir.

Guðjón Valur reiður eftir tapið í gær

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson var vonsvikinn með leik íslenska liðsins gegn Hvít-Rússum og segir íslensku leikmennina ekki vera að taka skynsamalegar ákvarðanir og kallar eftir meira aga.

Aron þjálfari: Því miður fórum við íslensku leiðina

"Það þurfti að skoða margt í nótt og þá aðallega varnarleikinn,“ segir Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari en hann svaf líklega ekkert sérstaklega mikið í nótt eftir tapið gegn Hvíta-Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×