Sport

Svona leit fóturinn á Dos Anjos út í gær | Mynd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Dos Anjos missir af stórri útborgun í byrjun næsta mánaðar.
Dos Anjos missir af stórri útborgun í byrjun næsta mánaðar. vísir/getty
Um leið og Rafael dos Anjos dró sig úr bardaganum gegn Conor McGregor í gær fóru af stað sögusagnir um að það væri ekkert að honum. Hann væri bara hræddur.

Það var nú ansi langsótt samsæriskenning og Dos Anjos sýndi heiminum í gær að ástandið á fæti hans væri ekki gott.

Brasilíumaðurinn bað aðdáendur sínar afsökunar á því að komast ekki í bardagann. Hann væri ekki vanur að fresta sínum bardögum en slysin gerðust engu að síður.

Á myndinni hér að neðan má sjá að hann er ekki í standi til að keppa á næstunni.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×