Vísir hafði samband við Hönnu Kristínu Didrikssen sem rekur snyrtistofuna Dekurhús didrix um lausnir á bólum og erfiði í húð.
„Ég sé svo marga sem eru í algjörum vandræðum með húðina sína og það get ég svarið að í dag þarf enginn og þá meina ég enginn að ganga um með bólur. Þetta vandamál er ofureinfalt að leiðrétta og tekur aðeins um sex vikur í verstu tilfellunum," segir Hanna ákveðin og heldur áfram:
„Húðin er okkar stærsta líffæri og segir allt til um hvernig við höfum það. Það er hægt að lesa úr húðinni hvernig viðkomandi hefur það og hvernig hann nærist. Það eru nokkrir punktar hérna sem skipta höfuð máli til þess að húðin haldist skínandi falleg og í jafnvægi," segir Hanna.
„Til þess að gera langa sögu stutta þá ætla ég að einfalda allar útskýringar á hvers vegna að við fáum bólur í nokkur atriði," segir Hanna og byrjar á upptalningunni:
„Þá skaltu borða eftirfarandi: Dísætt morgunkorn, Cocoapuffs, Trixí og flest allt morgunkorn í pökkum.
Skyndibita (of mikið af vondri fitu, of margar hitaeiningar, of mikið af hvítu hveiti og of mikið af salti).
Sælgæti. Það er bólguvaldandi og riðlar sýrustigi húðarinnar þannig að hún opnar sig og verður flekkótt og þurr.
Kartöfluflögur. Þær fylla húðina af fitu og stíflum gerir hana flekkótta og ofnæmisgjarna (vond fita sem veldur bólgum, allt of mikið salt, allt of mikið af hitaeiningum, og stelur vítamínum og steinefnum af þér).
Borðaðu allt of mikið af Kúamjólkurvörum. Undir 150 ml á dag er í lagi en allt umfram það þá byrja að myndast vandræði í húðinni.
Áfengi. Það veldur bólgum og hrikalegum þurrk.
Sígarettur. Reykingar gera húðina gráa, guggna og fyllir ykkur af bjúg og húðin opnar sig og fyllist af þurrkublettum og bólum.
Sykraðir drykkir gos og djús. Þessir drykkir stela vítamínum, koma húðinni í ójafnvægi og opna hana.
Sykurlausir drykkir sem eru með gervisykri og koltvísýru. Þeir koma húðinni í ójafnvægi og ýta undir bólur, ofnæmi og þurrki eða bara fílapensla og fitumyndun í yfirborði. Þeir reyna á lifrina og auka líkur á stórkostlega aukinni sykurþörf enda ekkert í þessum drykkjum sem fruman þarf á að halda.
Hvítt hveiti. Þá snúðar, rúnstykki, hvítt brauð, pasta, núðlur og annar matur sem búinn er til úr hvítu hveiti og sykri. Það gerir húðina bólótta , blettótta, þreytta, gráa og guggna og stelur næringarefnum af okkur. Bæði vítamínum og steinefnum og eyðir upp orkugefandi vítamínum og eykur bólgur.
Smjörliki, margarín og majónes. Úff troðfullt af eiturefnum og veldur bólgum, bólum ofnæmi og kemur húðinni í ójafnvægi.
Á svona mataræði er viðkomandi að fá innihaldssnauða fyllingu án lífsnauðsynlegra næringarefna og þá verður húðin bæði slöppp, grá guggin, bólótt og fyrirfram öldrunarvandamál fara að gera vart við sig," segir Hanna Kristín.
Eins og sjá má á þessari upptalningu þá er augljóst hvað er að hjá þeim sem eru í vandræðum með húðina sína," segir Hanna.Nú til þess að einfalda þetta allt saman þá geta þeir sem hafa áhuga á því að fá hjálp hreinlega komið til mín og ég geri þá drög að degi fyrir viðkomandi og leiði hann í gegnum 6 vikna detox prógram skref fyrir skref ásamt því að hreinsa húðina og kreista stíflurnar og sjá til þess að yfirborðið verði hreint og geislandi af heilbrigði."