Lífið

Svona hljómar Þjóðhátíðarlagið 2016

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Þjóðhátíðarlögin eru orðin það samgróin íslensku samfélagið að í gær mátti heyra eitt þeirra sungið á Stade de France leikvanginum í París í gær. Þar sungu sigurglaðir Íslendingar Lífið er yndislegt sem var þjóðhátíðarlag Lands og sona á sínum tíma.

Í dag kemur svo út Þjóðhátíðarlagið fyrir árið 2016. Það heitir Ástin á sér stað og er flutt af Sverri Bergmann, Friðrik Dór og hljómsveitinni Albatross.

Fjallabróðirinn Halldór Gunnar Pálsson semur lagið en Magnús Þór Sigmundsson á texta. Þeir hafa áður unnið Þjóðhátíðarlag saman en það var árið 2012 þegar þeir gerðu lagið Þar sem hjartað slær.

Um er að ræða hjartahlýja ballöðu sem hæfir stemningunni í dalnum en lagið segir ástarsögu sem hófst þar fyrir um 30 árum síðan.

Myndbandinu er leikstýrt af Davíð Arnari Oddgeirssyni hjá Mint Production. Það má sjá hér að ofan. Gjöriði svo vel.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×