Tónlist

Svona hljómar Paper ef Daði hefði samið það

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fínasta útgáfa.
Fínasta útgáfa.
Svala Björgvinsdóttir fer fyrir Íslands hönd á Eurovision-keppnina í Kænugarði og flytur hún lagið Paper.

Hún stígur á svið þann 9. maí á fyrra undanúrslitakvöldinu en Svala vann Söngkeppnina hér á landi á dögunum.

Þar var hún í samkeppni við Daða Frey Pétursson sem vakti strax mikla athygli í keppninni. Hann sló meðan annars rækilega í gegn hér á landi með margskonar ábreiðum af þekktum lögum.

Nú er komið út remix af laginu Paper og það eftir Daða Frey sjálfan en hér að neðan má hlusta á útkomuna.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×