Tónlist

Svona hefurðu aldrei heyrt Goonies-lagið

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Þorri, eða Þormóður Dagsson úr Tilbury, hefur endurgert lag Cindy Lauper úr kvikmyndinni The Goonies sem heitir Good Enough.

Lagið má hlusta á hér fyrir ofan en tilefni endurgerðarinnar er myndlistarsýningin GGG sem opnar í dag í Bíó Paradís. 

Á sýningunni sýna þrjátíu myndlistarmenn verk tileinkuð þremur ástsælustu kvikmyndaverkum níunda áratugarins: Gremlins, Goonies og Ghostbusters.

Sýningin stendur yfir í tvær vikur og á sama tíma tekur bíóhúsið myndirnar þrjár til sýninga.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×