Lífið

Svona gerir níræður maður 24 upphífingar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vern er einn harður maður.
Vern er einn harður maður.
Ein erfiðasta æfingin í líkamsrækt eru án efa upphífingar, þegar maður þarf að hífa sína eigin líkamsþyngd upp.

Margir hverjir bölva þessari æfingu í sand og ösku og hreinlega geta ekki tekið eina einustu upphífingu.

Miðillinn Mashable segir frá einum mögnuðum manni í grein á vefnum. Um er að ræða Vern frá Flórída en hann er ekki nema níræður að aldri.

Vern getur tekið 24 upphífingar, og hann getur sannað það. Hér að neðan má sjá myndband af þessum magnaða manni sem er heldur betur í góðu formi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×